Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Surtshellir í sýndarveruleika

„Verkið var krefjandi enda kalt, dimmt og rakt í hellum sem þessum og mikilvægt að gæta öryggis á allan hátt. Út frá rúmlega þrjú hundruð skönnunar­stöðum var hægt að útbúa samfellt punktaský og í kjölfarið sýndar­veruleika af öllum hellinum,“ þessu lýsir Diego Bitzenhofer, verkfræði­nemi við Háskóla Íslands. Hann og Ravindra Thapa, verkfræði­nemi við Hí unnu að því að kort­leggja Surts­helli af nákvæmni með leysis­kanna og flygildi til varðveita ásýnd hans í sýndar­veruleika í verndar­skyni og til kynningar.

Nú er þetta leik­svið sum sé kort­lagt af ótrú­legri nákvæmni og er að auki hægt að horfa á mynd­band þar sem hægt er að ferð­ast um í hell­inum, fara hann á enda og í alla rangala.

„Tilgangur verk­efnisins var að afla nákvæmra gagna um lögun og gerð hellisins til að skilja betur hraun­rásina, sem flutnings­kerfi innan hraun­breiðu og jafnframt varðveita ásýnd hans í sýndar­veruleika í verndar­skyni og til kynningar,“ segir annar nemendanna, Ravindra Thapa sem er frá Nepal.

Þeir Diego og Ravindra unnu þetta verkefni undir leiðsögn Ingibjargar Jóns­dóttur, dósents í landfræði og Þorvaldar Þórðar­sonar, prófessors í eldfjalla- og bergfræði. Þau starfa bæði við Jarðvísinda­deild Háskólans.

Surts­hellir er afar sögu­frægur og leiksvið óhæfu­verka í Sturlungu þar sem segir af því þegar einn af höfðingjum Sturlunga, sjálfur Sturla Sighvatsson, lét færa Órækju Snorrason niður í hellinn hvar hann var pyntaður og skaddaður fyrir lífstíð. Þetta var árið 1236. Það er til marks um skálm­öldina sem þá ríkti að Sturla og Órækja voru bræðra­synir. Órækja var sonur skáldsins og höfðingjans Snorra Sturlu­sonar.

Nú var þetta leiksvið sum sé kortlagt af ótrúlegri nákvæmni og er að auki hægt að horfa á myndband þar sem hægt er að ferðast um í hellinum, fara hann á enda og í alla rangala.

Þeir Ravindra Thapa og Diego Bitzenhofer. MYND/Kristinn Ingv­ars­son.

Sá lengsti sem hefur uppgötvast 

Surts­hellir er í Hall­mundar­hrauni í Borgar­firði og er talin hafa runnið á tíundu öld eða fljótlega eftir landnám. Hann er sá lengsti sem hefur uppgötvast hérlendis eða hartnær um tveir kíló­metrar að lengd.

Diego Bitzenhofer, sem er frá Þýska­landi, segir að vinnan á vettvangi hafi tekið um tíu daga, og falist í uppsetningu leysi­búnaðar, ljósa­kerfis og viðmiðunar­punkta.

„Stór hluti verk­efnisins var úrvinnsla, hreinsun og samsetning gagna. Yfirborð hraunsins var myndað með flygildi og út frá mynd­mælingum var reiknað hæðar­líkan og samfellt myndkort, sem svo má tengja við hella­gögnin.“

Verkefnið var unnið af Háskóla Íslands í samstarfi við Árna B. Stef­ánsson – Fjörgyn ses. og Jón Bergmann Heimisson – Punktaský ehf. auk Vinnumála­stofnunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp