Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Sorgarfregnir úr Ármúlanum: Rupp er allur

Tryggvi í nærmynd
Tryggvi í nær­mynd

Sorgar­fregnir bárust Mannlífi í gær en starfs­maður Ísólar í Ármúlanum fann Rupp, yngsta son tjaldanna Tryggva og Tryggvínu, nálægt vinnu­staðnum og var hann allur.

Mannlíf hefur í vor og sumar birt fréttir af tjalda­parinu Tryggva og Tryggvínu sem komið hafa í Ármúlann í yfir 30 ár til að koma upp óðali á þaki Ísólar en er þakið bæði grýtt og grösótt og hentar því tjalda­parinu afar vel. Í ár komu þau upp þremur ungum, þeim Ripp, Rapp og Rupp.

Ripp og Rapp brögguðust vel frá upphafi en Rupp ekki. Rupp var alltaf helmingi minni en bræður sínir en ástæðan fyrir því er sú, samkvæmt sérfræðingi í tjöldum, að foreldrarnir töldu ekki næga fæðu vera á svæðinu svo hægt væri að koma öllum ungunum á legg. Því hafi þeir einblínt á að fæða Ripp og Rapp en skyldu Rupp út undan. Blaðamenn Mannlífs urðu vitni að því í nokkur skipti er Rupp, sem var ansi sprækur þrátt fyrir smæðina, hlaupa á undan bræðrum sínum með orm í goggi, uppi á þakinu en alltaf endaði ormurinn í maga bræðranna.

Á tímabili íhuguðu blaðamenn Mannlífs björgunar­aðgerðir svo hægt væri að koma Rupp á legg en áttuðu sig svo á að slíkt inngrip gæti haft áhrif á alla hina tjaldana í óðalinu. Þannig að fingur voru krossaðir og sumir lögðust á bæn.

Ripp og Rapp náðu, eftir töluvert bras, að læra að fljúga um loftin blá með foreldrum sínum en annað var uppi á teningnum með Rupp. Í samtali við starfs­mann Ísólar í gær kom í ljós að Rupp hafði fundist látinn við grindverk á bílastæði fyrir­tækisins. Taldi starfs­maðurinn að hann hefði reynt að fljúga en ekki tekist það og því hrapað til bana.

Tryggvi og Tryggvína virðast nú farin á vit ævintýr­anna en munu að öllu óbreyttu mæta aftur næsta vor en Mannlíf mun fylgjast vel með.

Mannlíf vottar aðdáendum og velunnurum Rupp samúð sína.

Tjald­ur­inn Tryggvi er ófeim­inn við mynda­vél­arnar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá