Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hófu framkvæmdir án tilskylds umhverfismats – Fjarðabyggð sleppur með skrekkinn

Mjóeyrarhöfn
Mjó­eyr­ar­höfn Mynd: Ægir afmælisblað – issuu.com

Sjaldgæft er að farið sé í meiriháttar framkvæmdir án undan­gengins umhverfis­mats, líkt og raunin er um vinnu við annan áfanga Mjóeyrar­hafnar, að sögn sérfræðings hjá Skipulags­stofnun. Útlit er fyrir að sveitar­félagið Fjarða­byggð muni sleppa með skrekkinn.

Í frétt Austur­fréttar segir að umhverfismat og skipulag standi nú yfir fyrir annan áfanga Mjóeyrar­hafnar. Búið er að fylla upp í rúma tíu hektara af þeim 12 sem þarf fyrir framkvæmdina. Bróður­parturinn var gerður haustið 2020 en er vinna átti að hefjast við nýtt deili­skipulag fyrir svæðið kom babb í bátinn, umhverfis­matið vantaði.

Jón Björn Hákonarson bæjar­stjóri Fjarða­byggðar, sagði í samtali við Austur­frétt, að mistök hefði verið gerð hjá framkvæmdar­aðilanum, sem er sveitar­félagið. Lágu mistökin í því að talið hefði verið að umhverfismat hefði verið gert fyrir mögulega stækkur, er fyrsti áfangi núverandi hafnar, var gerður árið 2005. Það reyndist rangt.

Jón Björn Hákon­ar­son

Fram kemur í áliti Skipulags­stofnunar á mats­áætlun að um sé að ræða ámælis­vinnubrögð af hálfu Fjarða­byggðar sem þarf að tryggja að endurtaki sig ekki. Að sögn Jóns Björn er búið að endur­skoða og brýna verkferla hjá sveitar­félaginu.

Lögum samkvæmt er óheimilt að gefa út framkvæmda­leyfi án álits stofnunarinnar um umhverfismat en í svari Jakobs Gunnars­sonar, sérfræðings á svið umhverfis­mats hjá Skipulags­stofnun kemur fram að ljóst sé að mistökin í þessu tilfelli séu ekki algeng, að byrja vinnu við framkvæmdir við mats­skyldar framkvæmdir án mats.

Þrátt fyrir að yfir­sjónin séu í bága við lög lítur stofnunin hins vegar svo á að um undan­tekningar­tilfelli sé að ræða. Og þá er það mat stofnunarinnar að fengnum útskýringum á mistökunum, sé rétt að ljúka umhverfis­mati fyrir annan áfanga, þrátt fyrir að framkvæmdirnar séu langt á veg komnar.

Heimild er í lögum fyrir Skipulags­stofnun að leggja stjórnvalds­sektir á þá aðila sem hefja framkvæmdir áður en umhverfismat hefur farið fram en heimildin var þó ekki lögfest fyrr en árið 2019. Framkvæmdirnar við annan áfanga Mjóeyrar­hafnar hófust eftir það ár og því sleppur sveitar­félagið með skrekkinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp