Fimmtán eru látnir, þar af að minnsta kosti sjö börn og fjórir kennarar, eftir skotárás á skóla í borginni Isjivsk í miðhluta Rússlands í dag. Þá eru 21 særðir eftir árásina en tveir öryggisverðir við skólanna eru meðal hinna látnu.Byssumaðurinn, sem var fyrrverandi nemandi við skólann, var í bol með hakakrossi framan á þegar hann ruddist inn í skólann. Áður en lögregla náði til hans svipti hann sig lífi. Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Rússlandi og Vladimír Pútín Rússlandsforseti kallar árásina hryðjuverk.Í rússneskum fréttamiðlum í dag hafa birst myndbönd og myndir sem sýna blóð á veggjum skólans og nemendur sem flýja í dauðans ofboði út á skólalóð. Byssumaðurinn hefur verið nafngreindur í fjölmiðlum, Atem Kazanstev en hann var vopnaður tveimur skammbyssum.Myndir í rússneskum miðlum sýna hann liggjandi, lífvana í blóði sínu, í bol með mynd af hakakrossi og með lambúshettu á höfðinu.
Myndband sem sýnir börn og kennara leita sér skjóls með árásinni stóð má sjá hér.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir