Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ótrúlegt augnablik Ólínu með Elísabetu: „Læddist dauðstressuð til að smeygja mér úr sokkabuxunum“

Ólína Þorvarðar­dóttir, þjóð­fræðingur og rithöfundur, átti ógleymanlegt augnablik með Elísabetu II Englands­drottningu heitinni þegar hún kom hingað í opinbera heimsókn árið 1990. Henni finnst drottningin einfald­lega hafa verið merkasti þjóð­höfðingi Evrópu, fyrr og síðar og er glöð yfir því að hafa átt þetta ógleymanlega atvik með drottningunni.

Frá upplifun sinni segir Ólína á Facebook og svo hljóðar frásögn hennar:

„Elísabet II. var stórmerk kona. Mögnuð manneskja.
Hugtakið „göfgi“ mætti skilgreina með vísan til hennar – afstöðu hennar til hlutverks síns en ekki síður persónu­leika hennar. Hún var þjónandi þjóð­höfðingi og helgaði líf sitt þjóð sinni.

Ég var svo lánsöm að hitta hana og Philip eiginmann hennar á borgar­stjórnar­árum mínum á tíunda áratugnum. Þau komu þá í opinbera heimsókn til Reykja­víkur í borgar­stjóratíð Davíðs Oddssonar. Mér er minnis­stæð framkoma þeirra beggja, svo elskuleg, alþýðleg og áhugasöm sem þau voru um alla sem þau heilsuðu og ræddu við í Höfða af þessu tilefni. Þau stöldruðu við og ræddu við hvern einasta boðsgest sem Davíð kynnti samvisku­samlega fyrir þeim. Davíð er mér raunar líka minnis­stæður úr þessari veislu, því hann hóf sig svo gjör­samlega yfir flokks­línur í kynningum sínum og gerði stundina mjög eftir­minnilega fyrir bæði samherja og pólitíska andsæðinga.

Svo kom röðin að okkur Sigga – ég hafði rétt áður en að þessu kom uppgötvað svakalegt lykkju­fall á sokka­buxunum mínum, hef sennilega rekið mig í eitthvað á leiðinni inn. Ég gat ekki hugsað mér að standa og ræða við drottninguna með risastórt lykkju­fall aftan á kálfanum svo ég læddist dauð­stressuð afsíðis til að smeygja mér úr sokka­buxunum og rétt náði í tæka tíð til baka.

Davíð var í essinu sínu og kynnti mig vel fyrir drottningu. Af mæli hans mátti ráða að ég væri spútník pólitíkus, leiðtogi nýrrar sameinaðrar bylgju jafnaðar­manna (sem var auðvitað draumurinn þá um stundir en nokkrum árum síðar gekk Nýr vettvangur inn Reykja­víkur­listann og nýtt fólk tók við keflinu). Nema hvað, hann gerði ítarlega og góða grein fyrir mínum fyrri störfum, að ég væri 4ra barna móðir (5ta barnið ekki komið á þeim tíma), frétta­maður og fleira, og drottning lyftist öll upp. „Really? How interesting“ sagði hún og tók að spyrja mig spjörunum úr. Sagði mér frá sínum börnum og ræddi hlut­skipti margra barna mæðra í opinberum störfum, vanda móður­hlut­verksins, hlutverk fjölmiðla í opinberri umræðu og stöðu kvenna á breytinga­tímum.

Fljótlega eftir að samtalið hófst hnippti Philip drottningar­maður í Sigga manninn minn og fór að spyrja hann um málverk og myndir á veggjum. Siggi, fróður um listasögu og sagn­fræðingur góður, svaraði samvisku­samlega og áður en við var litið voru þeir komnir í hróka­samræður um sögu Reykja­víkur þar sem þeir röltu um og skoðuð myndir á veggjum í veislu­salarins. Aðrir gestir hljóta að hafa verið farnir að ókyrrast, því samtalið dróst á langinn, en svo þegar því var að ljúka var Philip aftur kominn upp að hlið drottningar – leið þangað eins og reykur án þess að séð væri að hún hefi gefið honum neina bendingu – á hárréttu augna­bliki til þess að kveðja okkur hjónin um leið og þau sneru sér að næstu gestum.

Þetta var ógleymanlegt atvik og mér þykir afar vænt um myndina sem tekin var af þessu tilefni. Davíð hef ég alltaf þakkað í huganum fyrir hversu mikill höfðingi hann var á þessari stundu, því það var honum að þakka hversu áhugasöm og gjöful drottningin var í þessu samtali okkar … sem nú er dýrmæt minning að henni genginni.

Hún er í mínum huga einn al merkasti þjóð­höfðingi Evrópu fyrr og síðar. Eftir­minnileg kona og einstök.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt