Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Gamaldags en notalegt hús í Mosfellsbæ til sölu

Húsið var reist árið 1978

Barrholt 31
Barrholt 31

Einbýlishús við Barrholt 31 í Mosfellsbæ hefur verið sett á sölu með ásett verð upp á 139,9 milljónir króna. Húsið var byggt árið 1978 og er staðsett á rólegum stað í grónu hverfi.

Húsið skiptist í stofu og borðstofu, eldhús, þvottahús, fjögur til fimm svefn­herbergi, tvö baðherbergi og rúmgóðan tvöfaldan bílskúr. Þá fylgir eigninni stór og fallegur garður með hellu­lagðri verönd.

Við inngang tekur á móti flísalagt anddyri með fatahengi og þaðan er hægt að ganga bæði inn í þvottahús og eldhús. Eldhúsið er bjart með upprunalegri viðar­innréttingu, hvítri borðplötu og útsýni til Esjunnar. Þvotta­húsið er innan­gengt bæði frá anddyri og eldhúsi og býður upp á gott vinnu­pláss.

Stofa og borðstofa eru rúmgóð rými með arni sem myndar miðpunkt rýmisins. Parket er á gólfum og útgengt er út í garðinn frá stofu. Hjóna­herbergið er staðsett innst á svefn­herbergis­ganginum og er með stórum fataskáp og útgengi út í garð. Tvö minni svefn­herbergi eru með parketi á gólfum en stærsta herbergið við forstofu var áður tvö herbergi sem sameinuð voru í eitt.

Aðal­baðherbergið var endurnýjað árið 2007 og er búið viðar­innréttingu, tveimur vöskum, baðkari, sér sturtu og upphengdu salerni. Gestasal­erni er við anddyri.

Tvöfaldur bílskúrinn er rúmgóður og búið er að stúka af sér rými innan hans. Fram kemur í sölu­gögnum að leki sé í þaki bílskúrsins. Þá eru næg bílastæði við húsið.

Samkvæmt upplýsingum seljanda hefur húsið fengið gott viðhald í gegnum árin, einkum að utan, þar sem bæði múr og þak hafa verið endurnýjuð eða lagfærð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni