Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ströng lög og reglur um sjúkraskrár: Brot geta varðað allt að þriggja ára fangelsi

Skýr lög og reglur gilda um sjúkra­skrár eintaklinga á Íslandi. Til þess að mega fara inn í sjúkra­skrá einstaklinga þarf að liggja að baki ríkt og sannanlegt erindi. Það telst gróft brot á persónu­vernd og einkalífi fólks ef farið er inn í sjúkra­skrá þess án þess að heimild sé fyrir hendi.

Hjónin Gunnar og Hlédís lýstu því á dögunum í viðtali hvernig þau teldu að farið hefði verið inn í sjúkra­skrár þeirra ótal sinnum með ólögmætum hætti. Þau segja mikið magn uppflettinga vera í nafni heilbrigðis­starfsmanna sem aldrei hafi annast þau. Ef rétt reynist myndi það teljast gróft brot á lögum um sjúkra­skrár.

Þurfa að koma að meðferð viðkomandi

Einungis þeir heilbrigðis­starfsmenn sem sannarlega annast einstakling á heilbrigðis­stofnun, eða koma að meðferð hans með einhverjum hætti og þurfa á sjúkraskrár­upplýsingum hans að halda vegna þessa, hafa heimild til þess að fara inn í sjúkra­skrá viðkomandi. Þeir heilbrigðis­starfsmenn þurfa að geta fært á það sönnur að hafa átt erindi inn í sjúkra­skrá þess einstaklings sem um ræðir.

Aðrir starfs­menn eða nemar í starfs­námi í heilbrigðis­vísindum, sem undir­gengist hafa sambærilega trúnaðar- og þagnar­skyldu og heilbrigðis­starfsmenn sem koma að meðferð sjúklings, geta fengið heimild til aðgangs að sjúkra­skrá hans að því marki sem nauðsynlegt er vegna starfa þeirra aðila í þágu sjúklingsins.

Ef ekki er unnt að sanna réttmætt erindi heilbrigðis­starfs­mannsins inn í sjúkra­skrána stendur viðkomandi frammi fyrir því að hafa hugsanlega gerst brotlegur gagnvart sjúklingnum.

Það er Land­læknir sem hefur eftirlit með því að ákvæði laga um sjúkra­skrár séu virt. Persónu­vernd sér um eftirlit með öryggi og vinnslu persónu­upplýsinga í sjúkra­skrám.

Alma Möller, land­læknir. Mynd/Land­lækn­is­emb­ættið

Landlæknir tekur slík mál alvarlega

Mannlíf sendi á dögunum embætti land­læknis nokkrar spurningar í tengslum við lög og reglur um sjúkra­skrár. Meðal annars var spurt hvernig það horfi við embætti land­læknis ef ótal heilbrigðis­starfsmenn virðist hafa farið inn í sjúkra­skrá einstaklings, án þess að eiga þangað erindi og án þess að hafa annast viðkomandi sjúkling eða starfað á þeim deildum þar sem viðkomandi hafi fengið umönnun.

Í svari Land­læknis segir að slíkt sé með öllu óheimilt og að embættið taki öll slík mál sem því berist alvarlega; rannsaki þau og beiti viðurlögum í samræmi við lögin eftir því sem við eigi um alvarleika þeirra brota sem um ræði.

Ef rannsókn leiðir í ljós að verulegar líkur séu á því að uppflettingar í sjúkra­skrá hafi brotið gegn persónu­verndar­hagsmunum sjúklings skal brot kært til lögreglu.

Brot gegn ákvæðum laga um sjúkra­skrár og þeim reglum sem settar eru í samræmi við þau geta varðað sektum eða fangelsi allt að þremur árum.

Ef rétt reynist, að ólögmætar uppflettingar í sjúkra­skrám þeirra hjóna séu með þeim hætti sem þau hafa lýst og sýnt Mannlífi á gögnum, er því um gróft lögbrot gegn þeim að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

„Blessuð sé minning þeirra þriggja manna sem snéru þaðan liðnir.“
Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá