Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fimm fræg lokaorð: „Peningar kaupa ekki lífið“

Einhverra hluta vegna er oft talað um síðustu orð fólks áður en það deyr, þá sérstak­lega þegar frægt fólk deyr. Mögulega er það vegna þess að aðdáendur þyrstir í ein skilaboð í viðbót, eina visku enn frá munni fólksins sem það dáist að. Hér eru fimm dæmi um fræg lokaorð.

1. Bob Marley

Konungur reggí-tónlistarinnar, Bob Marley lést úr sortuæxli 11. maí árið 1981. Æxlið hafði byrjaði í tá en dreift sér víða um líkamann. Þar sem Bob var harður rastafari, neitaði hann allri vestrænni meðferð við krabba­meininu og því fór sem fór. Það síðasta sem hann sagði við son sinn Ziggy voru þessi vitru orð: „Peningar kaupa ekki lífið.“

2. Al Capone

Einn frægasti glæpa­foringi sögunnar, Alphonse Gabriel „Al“ Capone, lést 24. janúar árið 1947, eftir að hafa barist við sárasótt í mörg ár. Rétt áður en hann dó þjáðist hann af ýmsum veikindum, þar á meðal lungna­bólgu, hjarta­áfalli og heila­blóðfalli. Annars var hann nokkuð frískur.

Nú er það ekki 100% staðfest en sagt er að síðustu orð Al Capone hafi verið: „Þú nærð lengra í lífinu með hlýjum orðum og byssu en bara með hlýjum orðum.“ Sennilega satt, því miður.

3. Winston Churchill

Winston Churchill, fyrrum forsætis­ráðherra Bretlands, lést sama dag og Al Capone, 24. janúar en árið 1965. Var hann þá níræður að aldri. Hann hafði fengið heilafall níu dögum áður. Heilsa hans hafði reyndar hrakað mun fyrr eða árið 1941 er hann heimsótti Hvíta húsið í Washington. Það tekur á að berjast við Hitlera þessa heims.

Forsætisráðherran aldni fór í dá fljótlega eftir heila­blóðfallið en rétt áður en það gerðist, muldraði hann hin fleygu orð: „Ég er orðinn leiður á þessu öllu.“ Churchill vaknaði aldrei úr dáinu.

4. Móðir Teresa

Móðir Teresa lést 5. september 1997, 87 ára að aldri. Dánar­orsökin var hjarta­áfall í bland við þó nokkra heilsu­kvilla. Hafði hún átt við heilsu­leysi síðustu 10 ár ævinnar.
Er hún dró síðasta anda­dráttinn lét hún út hin frægu orð: „Jesús, ég elska þig, Jesús, ég elska þig.“

5. Amy Winehouse

Andlát söng­drottningarinnar Amy Winehouse kom fáum á óvart enda hafði heimurinn fylgst með dauða hennar í „slow motion“ um nokkurra ára skeið en Amy glímdi við mikla eitur­lyfja og áfengis­fíkn. Lést hún þann 23. júlí árið 2011 en dánar­orsökin var bráð áfengis­eitrun en hún lést í svefni, aðeins 27 ára að aldri. Síðustu orð hennar voru afar sorgleg en hún sagði þau í símtali. „Ég vil ekki deyja.“ Heimurinn missti efnilegustu söngkonu sína þá nótt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“