Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Eftirförin skilur eftir sig tugmilljóna króna tjón á lögreglubílum

Sérsveit ríkislögreglustjóra. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd / Stundin.
Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd / Stundin.

Tjón á lögreglu­bílum vegna eftir­farar sem endaði með árekstri síðastliðinn föstudag hleypur sennilega á tugum milljóna króna, samkvæmt yfir­lögfræðingi hjá ríkis­lögreglu­stjóra. Mbl greinir frá þessu.

Um er að ræða bæði bíla lögreglu og sérsveitar, en minnst þrír bílar skemmdust töluvert í árekstrinum sem varð í nágrenni við Mjódd. Einn bílanna er sérútbúinn bíll sérsveitar.

Eftir­förin hófst eftir að ökumaður þeirra bifreiðar sem stöðva átti virti stöðvunar­merki lögreglu að vettugi. Málið tengist umfangs­miklum aðgerðum lögreglu þar sem lagt var hald á bæði mikið magn fíkniefna og fjármuna. Tíu voru hand­teknir í tengslum við rann­sóknina sem snýr að fíkniefna­lagabrotum og peninga­þvætti. Fimm þeirra voru úrskurðaðir í gæslu­varðhald, allt íslenskir karlmenn. Lögregla framkvæmdi meðal annars húsleit á Gamla enska barnum í Hafnar­firði, en einn sakborninga, Ólafur Ágúst Hraundal, rekur staðinn. Ólafur Ágúst var höfuð­paurinn í Stóra fíkniefna­málinu um aldamótin. Það var hann sem lögregla veitti eftirför síðastliðinn föstudag.

„Enn er verið að meta tjónið á öku­tækj­un­um, en það er ljóst að það hleyp­ur á tug­um milljóna,“ segir Helgi Valberg Jensson, yfir­lögfræðingur hjá ríkis­lögreglu­stjóra í samtali við Mbl. Hann segir að nú sé verið að skoða hvort gera eigi kröfu í lögboðna ábyrgðar­tryggingu bíls ökumannsins sem veitt var eftirför og olli árekstrinum, vegna tjónsins á lögreglu­bílunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá