Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Casey Affleck komst ekki í brúðkaup bróður síns: „Búðu þig undir vanstilla fjölskyldu!“

Casey Affleck
Casey Affleck Mynd: Instagram-skjáskot

Casey Affleck, litli bróðir Ben, mætti ekki í brúðkaup Ben og Jennifer Lopez um síðustu helgi. En hann sendi falleg skilaboð til þeirra á Instagram.

Í gær birti hinn 47 ára gamli leikari, Casey Affleck, ljósmynd af honum á gangi með Ben og Jennifer árið 2002 eftir að þau höfðu fyrst trúlofað sig. Þau skildu svo árið 2004 og fóru í sitthvora áttina en hafa nú náð aftur saman eftir 17 ára aðskilnað. Með ljós­myndinni skrifaði hann eftir­farandi línur: „Það er þess virði að bíða eftir góðum hlutum. Skál fyrir hæðum og lægðum, nýrri byrjun og fyrir nýrri ást sem fannst á gömlum grunni.“ Þá beindi hann orðum sínum að Jennifer og skrifaði: „Velkomin í fjöl­skylduna. Búðu þig undir vanstilla fjöl­skyldu! Grín. Ég er að grínast. Jen, þú ert gimsteinn. Við elskum þig svo mikið!!!“

Bennifer og Casey

En af hverju mætti Casey ekki í afmæli bróður síns? Samkvæmt E News! var hann spurður af pappa­rassi sem sá hann hlaupa út úr Starbucks í Los Angeles, morguninn fyrir brúðkaupið. Svaraði leikarinn með hásu röddina: „Ég hef öðrum hnöppum að hneppa.“

Samkvæmt heimildar­manni sem ræddi við People missti hann af afmælinu vegna fjölskyldu­aðstæðna og þá sérstak­lega vegna skyldu sinnar sem foreldri, hvað sem það nú þýðir. Casey á tvö börn með fyrr­verandi eiginkonu sinni, Summer Phoenix, 18 ára Indiana og 14 ára Atticus. Á degi brúðkaups Ben og Jennifer birti Casey færslu á Instagram sem virtist vera til Indiönu og tengjast því að þroskast. Eru lesendur varaðir við því færslan er að minnsta kosti þriggja klúta.

„Vatnið dýpkar, sjórinn víkkar og vindurinn getur aldeilis blásið. Þú hefur séð það áður. Og þó að skip séu öruggust við höfnina er það ekki það sem skip erum hönnuð fyrir. Þú ert tilbúin fyrir þetta. Þú ert einstak­lega yndisleg, full af heilindum, hugrekki og góðvild. Þú munt bæta heim hinna „fullorðnu“. Og ef þú ferð út í heiminn með forvitnilegri undrun og einlægu þakklæti mun heimurinn (að endingu) mæta þér með því sama. En gleymdu ekki að einn mikil­vægasta partur allra ævintýra… er að koma heim. Ég verð alltaf hér fyrir þig. Ég elska þig.“

Þó að Casey hafi ekki komst í brúðkaupið mættu fjölmargir vinir og fjölskyldu­meðlimir hinna nýgiftu hjóna og fagnaði deginum með þeim. Skiptust þau á heitum fyrir framan börn þeirra en Ben á þrjú börn með fyrr­verandi eiginkonu sinni, leik­konunni Jennifer Garner og Jennifer á tvíbura með söngvaranum Marc Anthony, fyrrum eigin­manni sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt