Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Valgerður yfirlæknir: „Höfum sýnt í verki að við lítum á fíknsjúkdóm sem heilsufarsvandamál“

Valgerður segir áfengið stærsta vandamálið
Val­gerður segir áfengið stærsta vanda­málið

Tolli Morthens er með sterkar skoðanir á lögleiðingu vímuefna – vill lögleiða þau, og er andstæðingur þeirrar refsi­menn­ing­ar sem hann telur að við Íslendingar búum við; tel­ur bata­menn­ingu vera einu réttu leiðina til að búa fanga und­ir betra líf þegar afplán­un þeirra lýkur, eins og kom fram í grein á mannlif.is í gær, og má lesa hér:

Mannlíf leitaði viðbragða við orðum Tolla hjá Valgerði Á. Rúnars­dóttur, sem er sérmenntuð á sviði lyflækninga og fíkn­lækninga og hefur starfað sem sérfræði­læknir og yfir­læknir á Sjúkra­húsinu Vogi í rúm nítján ár; er öllum hnútum kunnug í starfsemi SÁÁ.

Mannlíf spurði Valgerði: Ertu sammála eða ósammála orðum Tolla í greininni?

„Ég vil nefna nokkra punkta, því þetta er stór­skemmtilegt umræðu­efni; í mínum huga er ekki bara eitthvað með eða á móti varðandi þetta umræðu­efni,“ segir Valgerður og á þar við umræðu sem hefur verið nokkuð hávær og áberandi í íslensku samfélagi í langan tíma; hvort lögleiða eigi fíkniefni eða ekki og hvort við Íslendingar séum að beita refsimenningu hvað varðar neyslu á ólöglegum vímuefnum of mikið:

Hún bætir við:

„Við hér á Íslandi erum með stærstu fíkni­vandamálin vegna löglegra vímu- og fíkniefna,“ og á þar við hið löglega eiturlyf áfengi og lyfseðils­skyld lyf:

„Það dugar sem sagt ekki til að leysa vandann og við Íslendingar fangelsum líka færri en flestar aðrar þjóðir.“

Valgerður segir að „fólk sem glímir við fíkn­sjúkdóm á Íslandi hefur gott aðgengi að heilbrigðis­þjónustu á öllum stigum og almennt viðhorf er það, að hægt sé að leita meðferðar vegna fíknar, sem er ekki endilega viðhorfið annars staðar í heiminum.“

Hún bætir við „að skilningur á orðunum er ekki alltaf sameiginlegur hjá þeim sem fjalla um málið; afglæpa­væðing, ekki refsivert, lögleiðing, löglegt, leyfilegt, og þar fram eftir götunum.“

Að mati Valgerðar hvað varðar aðgengi þá „skiptir það mjög miklu máli fyrir stærsta hópinn. Viðhorf hefur mikil áhrif og er hluti af aðgengi; lög og reglur hafa áhrif á viðhorf.“

Og þá þurfa „lögleg efni regluverk og umgjörð; staðla; viðmið og fleira.“

Valgerður segir að lokum að „við Íslendingar getum gert miklu betur og sýnt það enn meira í verki að við hér á þessu litla landi lítum á fíkn­sjúkdóm sem heilsufars­vandamál sem á að meðhöndla sem slíkt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá