Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Anna Kristjáns fagnar sigri Fótboltasamvinnufélagi Halifaxhrepps: „Svona getur snobbið leikið mig“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

Anna Kristjáns­dóttir er eins og landsmenn vita, orðheppin með eindæmum og í raun drep­fyndin. Á Facebook heldur hún úti dagbók en hefur síðustu ár búið á Tenerife eða Paradís eins og hún kallar spænsku eyjuna.

Í nýjustu færslu sinni er Önnu tíðrætt um knattspyrnu­leiki liðinnar helgar.

„Dagur 1175 – Klausturbar.

Í gærmorgun var klukkunni breytt í Paradís. Þegar ég vaknaði klukkan sex að morgni komst ég að þeirri hræðilegu staðreynd að klukkan var bara fimm og ég neyddist til að eyða klukku­tíma lengur í rúminu áður en ég álpaðist á fætur.

Ég skrapp á Klausturbar (Nostalgíu) í gær, ekki til að slúðra um konur eins og meðlimum Miðalda­flokksins er tamt, frekar til að borða pönnu­kökur og drekka gos því ekki má ég drekka bjór þegar ég er á Mjall­hvíti. Þegar á Klausturbar var komið var allt lokað og læst og ég fór að örvænta. Hvar eru ábótinn og abbadísin á Klausturbar? Eftir nokkra stund mættu þau bæði og opnuðu húsið og mér tókst að óska ábótanum til hamingju með sigur hans manna hjá Sameinuðum Lýðs­verjum (Leeds United) gegn einhverju liði í peninga­deildinni. Þau hjónin voru svo ánægð með kveðjuna að ég þurfti nánast ekkert að borga fyrir pönnu­kökurnar og kókið.“

Í miðkafla færslunnar segir hún frá beiðni sem henni barst á „Klausturbar“ sem hún misskildi illilega:

„Eftir smástund fylltist allt af fólki. Nágrannar hans Kobba bróður mættu og tvær sem ég man ekki nöfnin á sem og Mummi frændi og Hrafnhildur (ekki Mummi meinhorn) og var þar fagnaðar­fundur og fullt af öðru skemmtilegu fólki. Frábær eftir­miðdags­stund á Klausturbar.Svo fór einhver að tala um að hún vildi taka selfie með sér og einhverju celebrity og ég stillti mér upp með bros á vör, en í stað þess að taka mynd af okkur saman, hljóp hún út og náði mynd af sér með Mjall­hvíti. Ég fór í rusl, flýtti mér í burtu og heim á Mjall­hvíti og lokaði hana snarlega niðri í bíla­geymslunni í stæði númer 65. Ég hélt að ég væri celebrity en ekki Mjallhvít. En svona getur snobbið leikið mig. Ég er alveg miður mín.

Við Helena fengum okkur dýrindis nauta­steik með bökuðum og bernaisse en síðan var haldið á Búkkann og felldir nokkrir bjórar með Pétri áður en ég þurfti að halda heim á leið og skrifa pistil morgun­dagsins.“

Að lokum skrifar Anna meira um úrslit helgarinnar, bæði úr fimmtu deildinni bresku sem og úrvals­deildinni:

„Af íþróttum helgarinnar er það helst að hetjurnar okkar í Fótbolta­samvinnu­félagi Halifaxhrepps unnu leikinn sinn með sannfæringu og lyftust aðeins upp frá botns­ætinu. Ég viðurkenni að toppsætið í fimmtu deild fjar­lægist stöðugt, en allt skal samt gert til að forðast fall niður í sjöttu deild.Ég held að ég þurfi ekki að ræða frekar leik Lýðsverja við eitthvert botnlið í peninga­deildinni þótt ég hafi vissulega náð að óska Stuart forstöðu­manni húsbarsins til hamingju með sigurinn enda einnig Lýðsverji rétt eins og Sævar ábóti á Klausturbar. Ég horfði hinsvegar á leik strákanna hans Nenna gegn strákunum í Vesturbæjar­skinkunum og sá leikur fór ljómandi vel að mati sumra.Höfum samt hugfast að ég hefi ekkert vit á bolta­sparki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt