Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Bandaríkin heimila fjórða skammt þótt gagnsemi sé dregin í efa: „Ávinn­ing­urinn er lítill“

Matvæla- og lyfja­stofnun Banda­ríkjanna (FDA) hefur nú heimilað bólu­setningu með fjórða skammti mRNA-bóluefna gegn Covid-19. Um er að ræða bóluefni frá Pfizer-BioNTech og Moderna. Þessu er greint frá á mbl.is.

Miðað er við einstaklinga 50 ára og eldri, sem og ónæmis­bælda einstaklinga. Minnst fjórir mánuðir þurfa að hafa liðið frá því að viðkomandi fékk síðasta örvunar­skammt.

Þeir sem eru ónæmis­bældir þurfa að vera 12 ára eða eldri til þess að mega fá þennan fjórða skammt af bóluefni Pfizer, en í tilfelli bóluefnis Moderna þurfa einstaklingar í sömu stöðu að vera orðnir 18 ára eða eldri.

Ávinningur lítill samkvæmt rannsóknum

Í svari Þórólfs Guðna­sonar sóttvarna­læknis til mbl.is segir að hér á landi hafi ónæmis­bældum einstaklingum staðið til boða að fá fjórða skammtinn um nokkurt skeið.

„Við erum ekki að bjóða fjórða skammt til annarra þar sem ávinn­ing­ur­inn er lít­ill sam­kvæmt er­lend­um rann­sókn­um.“ Hann segir flestar Evrópu­þjóðir vera með sama fyrir­komulag og við. Hann tekur fram að enn sem komið er hafi ekki margir þegið þennan fjórða skammt.

„Von er á sér­stöku ómíkron-bólu­efni á næstu mánuðum og að lík­ind­um verður beðið með frek­ari örvun­ar­skammta þar til síðar,“ segir Þórólfur.

Í frétt Mannlífs frá því í janúar var greint frá því að Lyfja­stofnun Evrópu (EMA) varaði við síendurteknum örvunar­bólu­setningum. Marco Cavaleri, yfirmaður bólu­efna­rannsókna hjá EMA, dró þörfina fyrir fjórða skammt bóluefna í efa og sagði engar rann­sóknir styðja þá þörf enn sem komið er.

Cavaleri sagði á blaðamanna­fundi að síendurteknar bólu­setningar með stuttu millibili væru ekki fýsilegar langtíma­lausnir. Hann sagði að örvunar­skammtur sem hugsanlega væri gefinn á fjögurra mánaða fresti, gæti ofgert ónæmis­kerfi fólks og valdið þreytu (e. fatique).

Cavaleri nefndi á sama blaðamanna­fundi að hugsanlega þyrfti að þróa sérstök bóluefni fyrir Omíkron-afbrigði veirunnar.

Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunin (WHO) hefur ítrekað bent á að það sé vænlegra til árangurs að bólusetja alla heims­byggðina, frekar en að ríkari þjóðir bæti við sig sífellt fleiri örvunar­skömmtum.

Marco Cavaleri lagði á blaðamanna­fundinum áherslu á þá góðu raun sem einn örvunar­skammtur gæfi og hvatti fólk áfram til að þiggja hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá