Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Kennarar með fíknisjúkdóm fá ekki laun í veikindaleyfi: „Ætlum að greiða þér, bara í þetta skipti“

Samsett mynd: Valgerður og Sigríður
Samsett mynd: Val­gerður og Sigríður

„Mér dettur ekki í hug að ég eigi ekki rétt á að fá laun af því að ég fór í meðferð,“ segir  Sigríður Guðjóns­dóttir, kennari, í viðtali við Mannlíf. Sigríður fór í meðferð fyrr á árinu vegna fíkni­sjúkdóms og var því frá störfum í veikinda­leyfi. Þegar hún sneri til baka úr meðferðinni var kölluð á fund með skóla­stjórnendum. Þar var henni tilkynnt að hún hefði þurft að skrifa undir samning, áður en hún fór í meðferðina. Á samningnum kom fram að skólinn væri ekki skyldugur til þess að greiða laun, fari fólk í meðferð í veikinda­leyfi.

„Ég skrifa undir og fer svo að hugsa eftir á hvað þetta er fáránlegt og niður­lægjandi,“ segir Sigríður sem var brugðið við þau skilaboð sem fylgdu er hún skrifaði undir.
„Hún (skóla­stjórinn) sagði; Við höfum samt ákveðið að greiða þér þetta, þú átt ekki rétt á þessu, en við ætlum að greiða þér þetta, bara í þetta eina skipti.“
Sigríður upplifði skömm í kjölfarið og leitaði svara hjá Kennara­sambandinu. Svörin sem bárust komu henni mikið á óvart en í bréfi frá Kennara­sambandinu segir:

„Það sjónarmið að fjar­vistir starfs­manns vegna meðferðar við áfengis­sýki sé ekki greiðslu­skyldar byggir á dóma­framkvæmd en ekki lögum. Í dómi Hæstaréttar frá 1984, bls. 439 var komist að þeirri niður­stöðu að fjar­vistir starfs­manns vegna áfengis­meðferðar væru ekki greiðslu­skyldar.

Vísað er til þessa dóms í samkomu­laginu sem Sigríður skrifaði undir og byggja því þær reglur sem Ísafjarðarbær hefur sett sér á þeim sjónar­miðum sem fram koma í dómnum.

Þannig að þetta er hvergi að finna í lögum, en dómstólar hafa dæmt þetta með þessum hætti og þetta hefur ekkert breyst í öll þessi ár.“

Sigríður segir með frásögn sinni ekki vera að gagnrýna skólann þar sem hún starfar beint, heldur að þetta sé raunin fyrir kennara.

„Árið 2022 – Er þetta bara ekki rétt. Þarna er ég að taka ábyrgð, ég er heiðarleg. Þetta verður til þess að við förum ekki í meðferð, það hefur enginn efni á að fara í burtu í sex vikur,“ segir hún og bætir við að fleiri kennarar hafi sömu sögu að segja, ein þeirra hafi til dæmis ekki fengið greitt.
„Mig langar ekki að fela þetta, þetta  er sjúkdómur og hann hefur heiti.“

Mannlíf leitaði í kjölfarið svara hjá SÁÁ og ræddi við Valgerði Rúnars­dóttur, yfirlækni hjá SÁÁ.

„Vinnu­veitandi ákveður ekki hvað er sjúkdómur og hvað ekki,“ sagði Valgerður, í samtali við Mannlíf í dag en fíkni­sjúkdómur er skilgreindur sem lang­vinnur heila­sjúkdómur. Þá sagði Valgerður mikilvægt að skoða málið, allir ættu rétt á veikinda­leyfi.

Blaða­maður Mannlífs ræddi við Hannesínu Scheving, sem hefur sömu sögu að segja. Hún fór í meðferð fyrir fimm árum síðan og fékk greidd, líkt og Sigríður. Þrátt fyrir það segir hún þetta vera prinsipp mál.
„Það sem að við erum reiðar yfir er að þetta skuli ekki vera í kjara­samningum. Við erum með ágætis samninga upp á veikindi og annað en þetta er ekki eins viðurkennt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

„Blessuð sé minning þeirra þriggja manna sem snéru þaðan liðnir.“
Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá