Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ný rannsókn leiðir í ljós áhættuþátt tengdan alkóhólisma

Samkvæmt niður­stöðum rann­sóknar Carnegie Mellon University í Banda­ríkjunum stóreykur það líkur á því að einstaklingur þrói með sér alkóhólisma eftir þrítugt ef viðkomandi drakk einsamall á aldrinum 18 til um það bil 25 ára. Greint er frá þessum niður­stöðum háskólans á vef The Sun.

„Flest ungt fólk sem drekkur, gerir það með öðrum í félags­legum aðstæðum, en minni­hluti ungs fólks drekkur einsamalt,“ segir Kasey Creswell, prófessor í sálfræði við skólann.

„Það að drekka einsamall er sterkur áhættu­þáttur þegar kemur að því að þróa með sér alkóhólisma. Jafnvel þegar við höfum farið í gegnum vel þekkta áhættu­þætti, eins og að drekka mikið í einu, algengi áfengis­neyslu, félagslegar aðstæður og kyn, þá sjáum við sterka tengingu milli þess að drekka einsamall þegar viðkomandi er ungur og vandamála tengdum áfengis­neyslu á fullorðins­árum.“

4.500 18 ára einstaklingar voru hluti af rann­sókninni. Þeir voru spurðir út í áfengis­neyslu sína og það hvort þeir drykkju áfengi einir. Fylgst var með aðilunum í 17 ár, sem áttu næst að veita upplýsingar um áfengis­neyslu sína 23 ára gamlir.

Um það bil 25 prósent svarenda drukku einir 18 ára, en 40 prósent þegar þeir voru komnir á miðjan þrítugsaldurinn.

Þegar fólkið hafði náð 35 ára aldri fóru þau í gegnum spurninga­lista um áfengis­vandamál. Samkvæmt niður­stöðunum eru líkurnar á því að kljást við vandamál tengd áfengi 35 prósent meiri hjá þeim sem drukku einir á yngri árum, í saman­burði við þá sem aðeins drukku í félags­legum aðstæðum.

Samkvæmt Mayo Clinic eru eftir­farandi nokkrir þeirra áhættu­þátta sem þekktir eru í tengslum við áfengis­vandamál, eða alkóhólisma:

  • Að byrja að drekka ungur
  • Alkóhólismi í nánustu fjöl­skyldu
  • Áfalla­saga, til að mynda kynferðis­ofbeldi
  • Mikil drykkja í einu sem á sér reglulega stað, eða stöðug drykkja yfir langt tímabil.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt