Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Sveitarfélög hunsuðu nefnd um vistheimili fólks með fatlanir: „Það vantar miklu betra eftirlit“

Vistheimilið Arnarholt. Mynd/skjáskot RÚV
Vist­heim­ilið Arn­ar­holt. Mynd/skjá­skot RÚV

Í gær skilaði starfs­hópur skýrslu þar sem meðferð á fólki með fötlun og geðræn vandamál var skoðuð. Starfs­hópurinn segir nærri helming sveitar­félaga landsins hafa hunsað ítrekuð erindi hans. RÚV greindi fyrst frá.

Samkvæmt frétt RÚV svöruðu 31 af 69 sveitar­félögum ekki erindi starfs­hópsins, þrátt fyrir ítrekanir hans. Meðal þeirra eru bæði fjórðu og fimmtu fjölmennustu sveitar­félög landsins.

Rannsaka tímabilið frá 1970

Starfs­hópurinn var skipaður af forsætis­ráðherra í þeim tilgangi að annast rannsókn á aðbúnaði og meðferð full­orðins fatlaðs fólks með þroska­hömlun og full­orðinna með geðrænan vanda. Skýrslan sem nú hefur verið birt felur í sér undir­búning rann­sóknarinnar. Nefndin leggur til að rann­sóknin fari fram samkvæmt fyrir­mælum laga um rann­sóknar­nefndir. Meðal þess sem lagt er til, er að rannsóknar­tímabilið verði annars vegar frá 1970 til 2011 og hins vegar frá 2011 og til dagsins í dag. Tilgreint er að nauðsynlegt sé að fatlað fólk með þroska­hömlun og fólk með geðrænan vanda sé á meðal nefndar­manna.

Svaraleysi Landlæknis og sveitarfélaga

Það vekur furðu að svo mörg sveitar­félög hafi ekki svarað erindum nefndarinnar. Fleiri létu hjá líða að svara, þar á meðal opinber embætti; til að mynda embætti land­læknis. Embætti land­læknis annast eftirlit með aðbúnaði og meðferð fatlaðs fólks með þroska­hömlun og fólks með geðrænan vanda á heilbrigðis­stofnunum. Sveitar­félögin gegna sömuleiðis slíku eftirlits­hlutverki.

Fjölmenn sveitarfélög hunsuðu nefndina

Á Vestur­landi hunsuðu sjö sveitar­félög erindi nefndarinnar. Þau sveitar­félög voru Snæfellsbær, Grundar­fjarðarbær, Helga­fellssveit, Eyja- og Miklaholts­hreppur, Stykkis­hólmsbær, Borgar­byggð og Hval­fjarðar­sveit.

Á Vestfjörðum voru það Bolungarvíkur­kaupstaður og Súða­víkur­hreppur sem létu hjá líða að svara.

Á Norður­landi Vestra bárust ekki svör frá einu einasta sveitar­félagi. Sveitar­félög þess lands­hluta eru Húnaþing vestra, Húna­vatns­hreppur, Sveitar­félagið Skaga­fjörður, Akra­hreppur, Blöndu­ósbær, Skaga­byggð og sveitar­félagið Skaga­strönd.

Á Norður­landi eystra voru það níu sveitar­félög sem virtu nefndina ekki svara. Athygli vekur að meðal þeirra er Akureyrarbær, sem er fimmta fjölmennasta sveitar­félag landsins. Hin voru Hörg­ársveit, Sval­barðs­strandar­hreppur, Grýtu­bakka­hreppur, Þing­eyjarsveit, Skútu­staða­hreppur, Tjörneshreppur, Sval­barðs­hreppur og Langa­nesbyggð.

Best frammistaða hjá Austur- og Suðurlandi

Öll sveitar­félög á Austur- og Suður­landi svöruðu erindum nefndarinnar. Þar á móti svaraði ekkert sveitar­félag á Suðurnesjum. Þau eru Reykja­nesbær, sem er fjórða fjölmennasta sveitar­félag landsins, Suður­nesjabær, Grinda­víkurbær og Sveitar­félagið Vogar.

Öll sveitar­félög höfuð­borgar­svæðisins svöruðu fyrir utan tvö; Seltjarnar­nesbær og Kjósar­hreppur.

Furðar sig á sinnuleysi

Árni Múli Jónasson, fram­kvæmda­stjóri Þroska­hjálpar.

Í samtali við RÚV segist Árni Múli Jónasson, framkvæmda­stjóri Þroska­hjálpar, furða sig á sinnu­leysi sveitar­félaganna sem létu hjá líða að svara erindum nefndarinnar. Hann segir þó að fljótt á litið lítist honum vel á tillögur nefndarinnar fyrir framkvæmd rann­sóknarinnar. Hann segist þó hafa viljað að rann­sóknin næði lengra aftur en til ársins 1970.

„Þetta eru sögur sem verður að segja, bæði til þess að fólk fái réttlæti og að það sé viðurkennt að það var komið fram við það með gjör­samlega óásættanlegum hætti og svo hitt að við lærum af þessu. Það vantar miklu betra eftirlit með þessu berskjaldaða fólki sem er tekið út úr samfélaginu og sett á stofnanir og komið fyrir einhvers staðar,“ segir Árni og bætir við að þetta þýði að fólk sé sett inn í aðstæður þar sem mikil hætta sé á að það njóti ekki lágmarks­réttinda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá