Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ragga opnar sig um þungunarrof sitt: „Ákvörðun sem hún stendur hnarreist með“

Ragga Nagli
Ragga Nagli Mynd: Aðsend

Ragnhildur Þórðar­dóttir, sem er lands­þekkt sem Ragga nagli, opnar sig á Facebook og segir frá því þegar þú sá sér engan annan kost en að fara í þungunarrof. Það var árið 1997 og hún var einungis 18 ára. Í Banda­ríkjunum stendur til að banna þungnarrof og í því ljósi segir Ragga mikilvægt að verja áunnin mann­réttindi kvenna.

„Árið 1997 er átján ára stúlka úti á galeiðunni í Reykjavík og hittir gamlan vinnu­félaga. Í bjartri sumarnótt eru fiðrildi í maga og eftir daður og drykki er skundað saman í leigubíl heim á leið til piltsins. Fræi sáð í frjóan svörð. Átján ára stúlka ekki tilbúin til móður­hlutverks tekur þá erfiðu ákvörðun að fara í þungunarrof,“ skrifar Ragga.

Hún segist ekki skammst sín fyrir þetta. „Ákvörðun sem hún á ekki að þurfa að skammast sín fyrir. Ákvörðun sem hún stendur hnarreist með alla ævi, enda líkami og lífshlaup hennar yfirráð. Ekki jakkafata­klæddra bókstafs­trúaðra miðaldra kalla­kalla með Biblíuna í annarri hönd og vandlætingar­vönd í hinni. Spólum áfram til ársins 2022. Væri þessi sama stúlka átján ára búsett í Arkansas í dag væri hún þvinguð til þungunar. Þvinguð til að ala barn með manni sem hún þekkir nánast ekkert,“ segir Ragga.

Hún veltir fyrir stöðu svo margra kvenna vestanhafs. „Líf hennar myndi taka stakka­skiptum. Frelsi hennar til ákvörðunar um framtíð sína væri úr hennar höndum. Óvissa um menntunar­möguleika, starfs­frama og fjárhagslegt öryggi. Það hljómar eins og lygasaga að 25 árum seinna í landi hinna frjálsu í Ammeríkunni hrapi kven­réttindi til baka um hálfa öld. Við vöknum upp eins og árið sé 1942,“ segir Ragga.

Ameríski drauminn var alltaf martröð. „Því land hinna frjálsu á greini­lega bara við um ríka, hvíta, gifta, miðaldra fólkið. Ekki ófrísku tánings­stúlkuna sem fór heim með strák af balli. Ekki ófrísku blökku­stúlkuna í félags­húsnæði sem var nauðgað af frænda sínum. Ekki konuna sem gengur með utan­legsfóstur. Ekki hjónin sem þurfa þungunarrof eftir blæðingar úr legi,“ segir Ragga.

Hún segist þakklát fyrir að búa á Íslandi. „Þungunarrof eru mann­réttindi hverrar konu, og sem betur fer er Ísland þar MJÖG framarlega á merinni. Að kynsystur okkar í Banda­ríkjunum og víðar hafi ekki lengur þennan sjálfsagða rétt yfir sínum líkama er baráttumál okkar allra. Höfum hátt á samfélags­miðlum, tölum saman, förum í viðtöl, skrifum pistla, deilum færslum og lækum tíst. Mörg smá hróp verða að stóru öskri yfir hafið,“ segir Ragga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá