Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Elísabet er með nýrnabilun á lokastigi: „Ég er búin að vera reið út í almættið og læknastéttina“

Skáldið Elísa­bet Jök­uls­dótt­ir er með nýrna­bil­un á loka­stigi eft­ir röð læknam­istaka; rík­ið hef­ur við­ur­kennt mis­tök­ og þá stað­reynd að ein­kenni og beiðn­ir Elísa­bet­ar um að­stoð voru huns­að­ar hvað eftir annað.

Þetta kemur fram á Stundinni.

Lög­fræðingur henn­ar seg­ir að í mál­inu komi skýrt fram for­dóm­ar gegn geð­sjúk­um; eitthvað sem tals­mað­ur Geð­hjálp­ar seg­ir of al­genga.

„Ég er núna komin á lokastig nýrna­bilunar. Sem þýðir að nýrun starfa á 15% afköstum,“ segir Elísabet, sem bíður nú þess að komast í lífs­nauðsynlega líffæra­ígræðslu.

Enn sem komið er hefur hentugur gjafi ekki fundist og á meðan hefur ástand Elísabetar versnað mjög; hún er komin á biðlista eftir nýra í Svíþjóð; bið sem reiknað er með að taki ekki meira en eitt og hálft ár.

Ástæður nýrna­bilunar geta verið margar: Háþrýstingur, sykursýki og sjúkdómar; líka afleiðingar af nýrna­steinum og lyfja­neyslu, og undir þann flokk fellur nýrna­bilun Elísabetar.

Lyfið lithíum sem Elísabet fékk fyrst ávísað árið 1999, er talin ástæða veikinda hennar, en Elísabet hafði á þeim tíma veikst nokkrum sinnum alvarlega af geðhvarfa­sýki; farið í maníur sem urðu til þess að ógna heilsu hennar svo að í nokkur skipti hafði verið gripið til þess að nauðungar­vista hana.

Algeng aukaverkun af lang­varandi lithíummeðferð er skert nýrna­starfsemi:

„Ég er á lithíum í hátt í tuttugu ár, og þá eru bara nýrun ónýt,“ segir Elísabet sem kveðst aldrei hafa fengið neina fræðslu um hættu af lang­varandi notkun lyfsins:

„Það hafði enginn læknir sagt mér frá því. Þannig að þegar ég varð sextug, og sá fyrir mér að fara að hafa það voða gott og eiga næstu 30 ár í friði og vera amma, fara að slaka á, þá kemur þetta.“

Nýrna­bilun eins og sú sem Elísabet glímir nú við gerist ekki á einni nóttu, en ástandið varð enn verra þar sem ekki var brugðist við skýrum merkjum um hvað væri að gerast; jafnvel þó að Elísabet leitaði ítrekað eftir aðstoð lækna og sýndi þekkt einkenni nýrna­bilunar. Þetta er mat tveggja sérfræðinga sem fengnir voru til að meta ástæður og afleiðingar í málinu:

„Fyrir liggur að Elísabet er komin með lokastig langvinns nýrna­sjúkdóms. Búast má við að hefja þurfi skilunar­meðferð við lokastigs­nýrnabilun innan 1-2 ára nema unnt verði að koma við ígræðslu nýra áður. Í tilviki Elísabetar er án nokkurs vafa um að ræða heilsu­tjón af völdum lyfja­meðferðar sem rekja má til þess að ekki var staðið rétt að eftirliti með meðferðinni. Elísabet tók lithíum í 18 ár samfleytt þar til meðferðin var loks stöðvuð vegna nýrna­sjúkdómsins.“

„Þetta eru sem sagt lækna­mistök,“ segir Elísabet og bætir við:

„Og ég var alltaf á leiðinni að hringja í landlækni til að kæra þetta. En svo er það ekki fyrr en fimm árum seinna að ég kynnist lögfræðingi sem er bara til í að gera þetta. Kona sem er til í að skoða málið fyrir mig og þá fæst þetta viðurkennt,“ segir Elísabet.

Forsvars­menn Land­spítalans, Sjúkra­trygginga og loks ríkis­lögmaður gengust við því að brotið hefði verið á Elísabetu; hún orðið fyrir tjóni.

Elísabet segist þó ekki bera kala til neins vegna þessa máls:

„Ég vissi aldrei hvað var að mér og ég var búin að fara til innkirtla­sérfræðings, gigtar­læknis, og heimilis­læknis og fleiri og fleiri lækna, til þess að vita af hverju ég var alltaf að rjúka svona upp, af hverju ég var alltaf þyrst, af hverju ég drakk þrjá lítra af ávaxta­safa á nóttu. Maður verður svo þyrstur út af nýrunum.“

Elísabet tekur orðnum hlut með æðruleysi; bíður þess að komast sem fyrst í nýrna­skipti:

„Ég er nátt­úrlega búin að vera reið út í almættið og reið út í lækna­stéttina. Ég fékk svona ótta um að deyja. Síðan næ ég sambandi við þennan nýrna­lækni og hann gaf mér aftur trú á lífið og lækna­stéttina. Það er alltaf voða gaman að fara til hans og hann tekur mig alltaf klukkan þrjú á föstu­dögum af því þá er ég síðasti kúnninn sko. Honum finnst ég svo skemmtileg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá