Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Pétur guðfræðingur: „Ég er 41 árs og er enn í uppgjöri vegna pabbaleysisins“

Pétur G. Markan. Mynd/skjáskot.
Pétur G. Markan. Mynd/skjá­skot.

Pétur G. Markan ræðir um birtingar­myndir sorgar í litlum samfélögum í hlaðvarps­þættinum Með vitjanir á heilanum á RÚV, sem Anna María Björns­dóttir og Júlía Margrét Einars­dóttir á vefrit­stjórn tóku saman. Hlaðvarps­þátturinn fer inn á efnistök íslensku þáttaraðarinnar Vitjanir, sem hafa verið sýndir á RÚV síðustu misseri. Pétur sem er guðfræðingur og fyrrum bæjar­stjóri í Súðavík missti föður sinn sautján ára gamall.

„Ég fæ meira að segja enn þá, 41 árs, svona blússandi öfundar­tilfinningu út í vini mína sem eru eitthvað að sýsla með pabba sínum,“ segir Pétur í samtali við Júlíu.

Ræðir stundum heillengi við föður sinn

„Ég missti pabba minn þegar ég var sautján ára. Og því fylgja alls konar tilfinningar og uppgjöf í lífinu. Ég er 41 árs og er enn í uppgjöri vegna pabba­leysisins. Ég fæ meira að segja enn þá, 41 árs, svona blússandi öfundar­tilfinningu út í vini mína sem eru eitthvað að sýsla með pabba sínum, enn þann dag í dag.“

Pétur tala um í þættinum að hann upplifi öfundar­tilfinningin sem birst á þann veg að hann geti orðið leiðinlegur við vini sína, vegna þess að þeir fá að stússast með feðrum sínum en hann ekki. „Þessar tilfinningar fara líka alveg út í það að ég á heilu og hálfu samtölin við pabba minn, bara á venju­legum degi. Og þegar maður er að brjóta heilann um flókin mál eða er í flókinni stöðu,“ þá segist hann ræða heillengi við föður sinn.

Tráma lifir í samfélaginu 

„Ég veit ekki hvort ég eigi að kalla það skugga en svo sannarlega lifir eftir trámi í samfélaginu,“ segir Pétur, þegar hann ræðir um snjó­flóðið á Súðavík. Pétur og hans fjöl­skylda bjuggu í sjö ár í Súðavík á árunum 2014-2019 og voru algjör­lega innvígð í samfélagið og hluti af menningu þess. Snjó­flóðið var en tveimur áratugum fyrr, þann 16. janúar 1995 þar sem fjórtán manns létust, þar af átta börn.

„Í Súðavík var tekin ákvörðun tiltölu­lega fljótt að byggja upp að nýju, það fluttu ekki margir í burtu heldur var þetta samfélag sem var ótrúlega samhent og vinnufúst.“ Samfélagið hafi sett undir sig hausinn og þykir Pétri það ótrúlegt fyrirbæri og aðdáunar­vert. Hálfu ári síðar hafi annað flóð fallið í nágranna­samfélaginu Flateyri og segir Pétur það mjög merkilegt að sjá hvernig þessi tvö samfélög hafi unnið ólíkt úr þessum skelfi­legu atburðum.

„Það kann að vera að það hafi að einhverju leyti lokast inni þessi harmur. Og þessi útrás sem þú þarft að fá og veita í gegnum áfalla­meðferð og annað, hafi kannski ekki komið og komið of seint.“

Stundum finnst mér ég geta þreifað eftir útlínum hans

Þegar fólk leiti ráða hjá Pétri og spurji hvort hann trúi því að fram­liðnir ástvinir séu enn á meðal vor, segist hann vísa í eigin reynslu. „Er hann þarna eða ekki? Jú,“ segir Pétur. „Svo augljós­lega að stundum finnst mér að ég geti þreifað eftir útlínum hans. Ég myndi vísa í eigin reynslu hvað þetta varðar, ég held að það sé einfaldast.“

HÉR er hægt að hlusta og lesa viðtalið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá