Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ráðherrann flutti ávarp við Grænavatn – Þriggja vatna sýn á Núpshlíðarhálsi

Lilja Alfreðsdóttir við Grænavatn.
Lilja Alfreðs­dóttir við Græna­vatn. Mynd: Reynir Traustason.

„Þetta nafn minnir mann sannarlega á Framsóknar­flokkinn,“ sagði Lilja Alfreðs­dóttir, ferðamála­ráðherra og vara­formaður Framsóknar­flokksins, þegar hún kom að Græna­vatni á Núps­hlíðarhálsi um liðna helgi.

Lilja var heiðurs­gestur í ferð með Fyrsta skrefinu 2023, gönguhópi Ferða­félags Íslands, um þetta einstaka svæði vatna og háhita. Genginn var átta kílómetra hringur með þriggja vatna sýn. Fyrst var komið að Spákonu­vatni í svartaþoku. Ekki eru til heimildir um tilurð þess nafns. Getgátur eru uppi um að kletta­mynd ofan við vatnið minni á spákonu og þess vegna sé nafnið tilkomið. Gengið var yfir háls og þá blasti við Grænavatn. Nafnið skýrir sig sjálft. Vatnið er að losna úr klaka­böndum og augljóst að það styttist í vorið. Lilja hafði á orði í léttum dúr að grænt væri fallegasti liturinn. Hún var, eins og aðrir göngumenn, hugfangin af fegurðinni við vatnið. Hópurinn áði við vatnið og ráðherrann flutti stutt ávarp um útivist og heil­brigði.

Hin und­ur­fögru Sog.

Eftir kaffis­toppið við Grænavatn var haldið upp á hálsinn. Þegar þangað kom braust sólin fram og bægði þokunni frá. Sólskini baðað Djúpavatn blasti við í allri sinni fegurð. Gengið var með brúnum þar til komið var að Sogunum, þeim undur­fögru. Sogin minna um margt á hvera­svæðið við Landmanna­laugar. Litbrigðin eru engu lík. Þar er líka eina vatns­fallið á Suðurnesjum, Sogslækur, sem ekki lætur mikið yfir sér.

Göngunni lauk þar sem hún hófst. Fólk var á einu máli um að þetta svæði væri fullkomlega þess virði að heimsækja aftur.

Djúpa­vatn.

„Hingað mun ég koma aftur. Það er ótrúlega gefandi að upplifa íslenska náttúru með þessum hætti,“ segir Lilja Alfreðs­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt