Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sýnishorn úr Háski: Hlíðin hrynur birt: „Að vinna með pabba sínum er auðvitað algjör forréttindi“

Hafdal við tökur á myndinni.
Hafdal við tökur á mynd­inni. Mynd: Aðsend

Sýnishorn úr þriðju heimildar­mynd Hafdal-feðga hjá framleiðslu­fyrirtækinu Hafdal fram­leiðsla, hefur nú litið dagsins ljós. Heimildar­myndin heitir Háski: Hlíðin hrynur og fjallar að miklu leiti um aurskriðurnar sem féllu á Seyðis­firði 18. desember 2020.

Um er að ræða þriðju heimildar­myndina frá Hafdal fram­leiðslu í Háska seríunni en áður hafa komið út myndirnar Háski: Fjöllin Rumska og Háski í Vöðlavík en sú fyrr­nefnda var tilnefnd til Eddu­verð­launanna árið 2018 sem besta heimildar­myndin.

Rætt við Baldur Pálsson, fyrrum slökkvi­liðs­stjóra á Héraði.

Mannlíf heyrði í öðrum fram­leiðanda myndarinnar, sem frumsýnd verður síðar á árinu.

„Að taka viðtölin auðvitað tók að sumu leiti á, fólk sem missti allt sitt. En það sem mér finnst merkilegast er að það slasast eða ferst enginn, því ef þú lendir í svona flóði þá eru afskaplega litlar líkur á því að þú komist lífs af. Tilviljanir einar réðu því að enginn var í all nokkrum húsum sem að fóru í flóðinu,“ sagði Eiríkur Hafdal, annar þeirra sem stendur að myndinni, aðspurður hvort það hafi ekki tekið á að gera myndina.

Eiríkur Hafdal við tökur á Seyð­is­firði.

Eiríkur útskýrir svo hvað sé fjallað um í myndinni.

„Í þessari mynd förum við yfir sögu Seyðis­fjarðar, saga skriðu­falla á svæðinu og svo eru þessum atburðum gerð góð skil. Svo uppbygging og framtíðin.“

Segir hann að Seyðfirðingar hafi tekið afar vel í verkefnið.

„Þegar við fórum af stað með þetta fengum við mjög góðar viðtökur hjá heima­mönnum sem voru boðnir og búnir til að aðstoða okkur á allan hátt. Verð líka að nefna aðgerðar stjórnina á svæðinu, en þeir voru mjög liðlegir varðandi aðgang okkar að svæðinu og að veita okkur upplyisngar bæði í viðtölum og svo bara upplýsingar yfir höfuð. Svo er það auðvitað er ég að gera þetta með pabba. Það er Þórarinn Hávarðsson. Og fyrir­tækið mitt Hafdal fram­leiðsla.“

Þórarinn Hávarðs­son leik­stjóri mynd­ar­innar.

Blaða­maður spurði Eirík hvort þeir feðgar hefðu ekki einnig gert hinar tvær Háska myndirnar saman.

„Jú við gerðum heimildar­mynd um snjó­flóðin í Neskaupstað 1974 fyrir nokkrum árum, en það var einmitt í þessari sömu seríu. Erum að halda í þetta nafn Háski. Sú mynd hét HÁSKI FJÖLLIN RUMSKA og var hún tilnefnd til Eddunnar 2018 sem besta heimildar­myndin. Gerðum líka mynd sem heitir Háski í Vöðlavík en það er um sjóslys austur á fjörðum 1993. Þannig Seyðis­fjörður er þriðja myndin í þessari seríu.“

En hvernig er að vinna með pabba sínum?

„Að vinna með pabba sínum er auðvitað algjör forréttindi. Við deilum þessu „áhugamáli“ saman, sem er auðvitað vinnan manns. En það er honum að þakka að ég er í þessum geira í dag, en hann var tökumaður þegar ég var að alast upp. Þannig fæ ég bakteríuna en núna er hann bara í leik­stjóra stólnum og ég tek allt upp. Stofnaði fyrir­tækið mitt Hafdal fram­leiðslu árið 2007 og erum við í allskonar vinnslu, allt frá auglýsingum og kynningar­efni ýmisskonar, yfir í streymi og sjónvarps­þáttagerð. Þetta er ótrúlega gaman, en við erum þrír fastráðnir þar eins og staðan er núna. Svo kemur pabbi annað slagið með okkur i verkefni.“

Hið magnaða sýnishorn úr Háski: Hlíðin hrynur má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt