Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Dánarorsök Ólympíuverðlaunahafa afhjúpuð: „Tori var á toppi heimsins þar til hún var það ekki“

Tori Bowie
Tori Bowie

Dánar­orsök Tori Bowie hefur verið kunngjörð en hún lést fyrir mánuði aðeins 32 ára að aldri. Var hún komin átta mánuði á leið.

Tory, sem vann þrenn verðlaun fyrir Banda­ríkin á Ólympíu­leikunum árið 2016, lést af völdum vandkvæða sem komu upp við fæðingu en hún lést á heimili sínu í Flórída 2. maí síðastliðinn. Fram kemur í krufninga­skýrslunni að hún hefði verið komin átta mánuði á leið og hefði verið byrjuð að fæða er hún lést.

Lík Bowie fannst þann 2. maí eftir að lögreglan í Orange sýslu var beðin um að framkvæma velferðar­athugun á íþrótta­konunni en ekki hafði þá heyrst frá henni í nokkra daga, samkvæmt talsmanni lögreglunnar. Tals­maðurinn sagði að lögreglan hafi ekki fundið nein merki um eitthvað grunsamlegt á vettvangi.

Umborðs­skrifsstofa frjáls­íþrótta­stjörnunnar staðfest andlátið degi seinna, en í Instagram-tilkynningunni stóð meðal annars: „Við misstum viðskiptavin, kæran vin, dóttur og systur. Tori var meistari… leiðar­ljós sem skein svo skært!“

Sex árum fyrir andlátið, vann Bowie gull­verðlaun í 4×100 metra hlaupi á Ólympíu­leikunum í Rio De Janeiro árið 2016, ásamt liðs­félögum hennar, Tianna Bartoletta, Allyson Felix og English Gardner. Þá vann hún einnig silfrið í 100 metra sprett­hlaupi og brons í 200 metra sprett­hlaupi á sömu Ólympíu­leikum.

Jarðarför Bowie var haldin 12 maí í Missis­sippi þar sem hún var syrgð af fjöl­skyldu sinni og nánum vinum.

„Nokkrar manneskjur voru beðnar að tala um Tori í jarða­förinni á laugar­daginn og í hvert skipti sem talað var um hlaupa­minningu, hugsaði ég „Ég var þar“,“ sagði Bartoletta á Instagram. „Tori var á toppi heimsins þar til hún var það ekki, ég var það líka. Við stóðum bókstaf­lega þar saman.“

Bartoletta deildi því að Bowie hafi „átt erfitt utan hlaupa­brautarinnar“ og hafi í síauknu mæli „einangrað sig“. Hin 37 ára hlaupa­stjarna hélt áfram: „Ég er þakklát fyrir að hafa náð sambandi við hana aftur þegar ég sá hana síðast. Og mér fannst að ég þyrfti að vera með henni aftur. Ég hafði aðeins einu sinni áður komið til Missis­sippi en ég mundi ekki eftir því. En ég mun seint gleyma þessari ferð. Og ég mun aldrei gleyma Tori.“

E News! fjallaði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár