Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Írska lögreglan birti ekki mikilvæga vísbendingu um hvarf Jóns Þrastar – Settist trúlega upp í bíl

Skjáskot úr öryggismyndavél.
Skjáskot úr örygg­is­mynda­vél. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Upptaka sem írska lög­reglan Gadaí fann í mars 2019, bendir til þess að Jón Þröstur Jónsson, sem hvarf í Dyflinni rúmum mán­uði áður, hafi ekki horfið fót­gang­andi, heldur hafi hann verið tek­inn upp í bif­reið.

Í þriðja þætti hlað­varps­ins Where is Jón? eða Hvar er Jón, sem er sam­starfs­verk­efni RÚV og RTÉ í Írlandi, koma fram upp­lýs­ingar um mynd­bands­upp­tökur sem lög­reglan fann mán­uði eftir dul­ar­fullt hvarf Jóns Þrastar en þessar upp­lýs­ingar hafa ekki áður komið fram opin­ber­lega.

Þegar upp­takan fannst var fjöl­skylda Jóns Þrastar enn í Dyflinni og kall­aði lög­reglan hana á fund inn. Kom þar fram að upp­takan væri úr eft­ir­lits­mynda­vél í stræt­is­vagni en hann keyrði eftir göt­unni Swords Road og fram­hjá Hig­hfi­eld-spít­al­anum en Jón Þröstur sést í eft­ir­lits­mynda­vélum spít­al­ans ganga fram­hjá Hig­hfi­eld klukkan 11:12, 9 febr­úar 2019. Stræt­is­vagn­inn keyrir síðan fram­hjá þremur mín­útum seinna en þá er Jón horf­inn.

Eina mögu­lega skýr­ingin fyrir því að Jón sé horf­inn af göt­unni þremur mín­útum síðar, telur lög­reglan vera þá að hann hafi stigið upp í bif­reið. Sagði hún fjöl­skyldu Jóns Þrastar að ekki væri hægt að beygja inn á aðrar götur á svæð­inu og þess vegna sé eina mögu­lega skýr­ingin á hvarfi hans sú að hann hafi sest upp í bif­reið og henni síðan ekið á brott.

Samkvæmt hlað­varps­þætt­inum skráðu fjöl­skyldu­með­limir Jóns á sínum tíma upp­lýs­ing­arnar sem feng­ust á fundi lög­regl­unnar, niður í skjal en þar héldu þau utan um allt sem við­kom mál­inu. Stað­festa þau minn­ingar sínar af fund­inum við dag­skrár­gerð­ar­fólk hlað­varps­ins. Fram kemur í þætt­inum að ekki sé ljóst af hverju lög­reglan hafi ekki greint frá þessum upp­lýs­ingum í fjöl­miðlum á sínum tíma.

Að því er fram kemur í þátt­unum er mynd­bands­upp­takan gríð­ar­lega mik­il­væg vís­bend­ing um hvarf Jóns Þrastar. Hafi hann sest inn í bif­reið þýði það að ein­hver veit eitt­hvað um ferðir Jóns og hugs­an­lega hvað varð um hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana

Sykur og sumar súkkulaðivörur hafa lækkað í verði, en egg og mjólkurvörur hækkað. Engin ein verslun er ódýrust á öllum könnuðum vörum.
Slúður

Neyð­ar­kall Gunnars Smára

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Sport

Brasil­ísk knatt­spyrnu­fé­lög leita til lög­reglu eftir slags­mál í leik U20-liða kvenna

Innlent

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Fimm ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur á Bústaðarvegi.
Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll