Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Nýjasta skip íslenska flotans landaði 2000 tonnum á Eskifirði: „Geri aðrir betur segi ég nú bara“

Margrét landar á Eskifirði.
Margrét landar á Eski­firði. Mynd: Samherji

Nýjasta skip íslenska flotans, Margrét EA 70, landaði fyrsta farmi sínum á Eskifirði á sunnudag en það voru 2000 tonn af loðnu.

Fram kemur í frétt Austur­fréttar að skipið hafi verið smíðað í Noregi árið 2008 en kom hingað til lands frá Skotlandi en þar hét það Christina S. Síðastliðinn miðvikudag kom skipið til Reykja­víkur og í kjölfarið var hafist handa við að uppfylla öll tilskilin leyfi samkvæmt íslenskum reglu­gerðum um fiskiskip.

Á föstudags­morgun lagði Margrét af stað í loðnu­miðin út af Reykjanesi og aðeins nokkrum klukku­stundum eftir að hún var komin á miðin var búið að dæla úr nótum fjögurra skipa um borð í Margréti. Hún sigldi svo með hráefnið austur á Eskifjörð til vinnslu.

Samherji á skipið en á vef fyrir­tækisins er viðtal við skip­stjóra Margrétar, Hjört Valsson, sem sagði að ferlið allt hefði gengið framar vonum. „Allt var klappað og klárt síðdegis á fimmtudeginum en mín bjartsýnasta spá var að það yrði hugsanlega við lok föstu­dagsins, þannig að þetta gekk allt saman vonum framar. Það eru fjölmargir þættir í ferlinu sem þurfa að ganga upp en með góðri og þéttri samvinnu allra tókst að ljúka þessu á innan við tveimur sólar­hringum og halda á miðin út af Reykjanesi. Skipið fór frá Skotlandi á sunnudegi og innan við viku síðar er sem sagt landað hérna á Eskifirði. Geri aðrir betur segi ég nú bara. Loðnu­vertíðin er líklega á loka­metrunum, þannig að hver sólar­hringur er dýrmætur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp