Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Aðalheiður fréttastjóri: „Þessi málaflokkur er í rúst“

Aðalheiður Ámundadóttir, fréttastjóri á Fréttablaðinu. Mynd samsett.
Aðal­heiður Ámunda­dóttir, frétta­stjóri á Frétta­blað­inu. Mynd sam­sett.

Aðal­heiður Ámunda­dóttir, frétta­stjóri á Frétta­blaðinu fór yfir stöðu geðheil­brigðis­þjónustu á Íslandi í leiðara Frétta­blaðsins í dag.

„Þessi glötuðu mannslíf liggja milli línanna í ömurlegum vitnis­burði um geðheil­brigðis­þjónustuna í landinu, sem Ríkis­endurskoðun birti nýverið. Geta kerfisins til að veita þjónustu er undir væntingum og bið eftir þjónustu alltof löng. Mismunun er innbyggð í kerfið og margir fá ekki þjónustu við hæfi vegna óljósrar ábyrgðar- og kostnaðar­skiptingar, skorts á fjármagni, manneklu og úrræða­leysi.

Upplýsingar liggja ekki fyrir um alger grundvallar­atriði eins og tíðni geðsjúk­dóma, kostnað og mannafla­þörf. Í stuttu máli er þessi mála­flokkur í rúst,“ segir Aðal­heiður.

Þunglyndi helsta orsök örorku

Aðal­heiður bendir á að þunglyndi sé ein helsta orsök örorku samkvæmt upplýsingum á vef Alþjóða­heilbrigðis­stofnunarinnar og sjálfsvíg önnur helsta ástæða dauðsfalla fólks á aldrinum 15 til 29 ára. Þá er ævilengd fólks með alvarlegar geðraskanir 10 til 20 árum skemmri en annars fólks sem sýni hve sterk tengsl eru milli geðsjúk­dóma og ótíma­bærra dauðsfalla.

Hún segir sorglegt að sjá afrakstur margra verkefna sem hleypa átti af stokkunum samkvæmt stefnu og aðgerðar­áætlun í geðheil­brigðis­málum sem samþykkt var af Alþingi árið 2016.

„Vinnumála­stofnun var falin ábyrgð á því að fjölga hluta­störfum á opinberum vinnu­stöðum með það að markmiði að gefa fólki sem dottið hafði út af vinnu­markaði vegna geðraskana, tækifæri til að fóta sig á ný. Vinnumála­stofnun bárust hins vegar ekki upplýsingar um verkefnið og setti það því aldrei í gang.“

Fordómar í garð geðfatlaðra

Aðal­heiður lýsir öðru dæmi af geðheil­brigðis­þjónustunni:

„Í sömu aðgerða­áætlun átti að efna til átaks um aukna þekkingu starfs­fólks í geðheil­brigðis­þjónustu á réttindum sjúklinga til túlka­þjónustu. Velferðar­ráðuneytið sem bar ábyrgð á aðgerðinni setti aldrei átakið af stað. Starfs­hópur sem skila átti áætlun árið 2017 um hvernig vinna ætti gegn fordómum í garð geðfatlaðra, var ekki skipaður fyrr en í október 2018. Skýrsla hans er ókláruð.“

Aðal­heiður bendir á að ungt fólk sem glímir við þunglyndi eða fíkni­vanda geti slegið í gegn fái það hjálp á réttu augna­bliki, en ella orðið uppspretta ömurlegra harm­leikja og dáið fyrir aldur fram meðan það bíður á biðlistum eða velkist um feni þeirrar óreglu sem umlykur geðheil­brigðis­þjónustuna.

„Það er eins og stjórn­völd skilji þetta ekki. Geðveiki er dauðans alvara. Góðu fréttirnar eru að árangurs­ríkar meðferðir eru til. Við getum hafist handa og þurfum ekki að bíða eftir. En verkin sem þarf að vinna hafa ekki verið unnin og á meðan fjara manns­lífin út. Það er ekki forgangsmál að bjarga þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá