Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

BIC sér grænt í kannabisbylgjunni

Willie Nelson og Snoop Dogg slást með í för

BIC kveikjari
BIC kveikj­ari Þekkja margir þennan Mynd: Sun Ladder/Wikipedia

Franski fram­leiðandinn BIC hyggst sækja af auknum krafti inn á markað fyrir kannabis­neytendur í Banda­ríkjunum í þeirri von að auka sölu á kveikjurum fyrir­tækisins. BIC er þekktast fyrir einnota penna, rakvélar og kveikjara.

Fyrir­tækið hefur meðal annars endur­vakið auglýsinga­slagorðið „Flick my Bic“, sem naut mikilla vinsælda á áttunda áratug síðustu aldar. Markmiðið er að höfða sérstak­lega til ört stækkandi hóps bandarískra kannabis­neytenda.

Rob Versloot, forstjóri BIC, segir þróunina í Banda­ríkjunum hafa verið hraða. Þótt kannabis sé enn ólöglegt samkvæmt alríkis­lögum hafa flest ríki Banda­ríkjanna heimilað notkun þess í lækninga­skyni og rúmlega 20 ríki hafa lögleitt neyslu í afþreyingar­skyni.

Versloot, sem er frá Amsterdam, telur veruleg sóknar­færi felast í þessari þróun. Hann tók við stjórn BIC fyrir rúmu ári og hefur það hlutverk að snúa við rekstri fyrir­tækisins eftir nokkur ár þar sem sala hefur verið undir væntingum.

Minnkandi tóbaks­neysla hefur meðal annars haft áhrif á eftir­spurn eftir kveikjurum. BIC hefur því reynt að höfða til nýrra viðskipta­vina og fengið þekkta kannabis­neytendur á borð við tónlistar­mennina Willie Nelson og Snoop Dogg, auk sjónvarps­stjörnunnar Mörthu Stewart, til að koma fram í auglýsingum fyrir kveikjara.

BIC hefur hingað til lagt mikla áherslu á sölu í stórum matvöru- og verslunar­keðjum í Banda­ríkjunum. Stjórn­endur sjá nú tækifæri í 15 til 20 þúsund sérverslunum sem selja vörur tengdar reykingum og kannabis­neyslu.

Kveikjarar skiluðu um þriðjungi af heildar­sölu BIC á fyrri helmingi ársins. Heildar­sala fyrir­tækisins dróst þó saman um 3,5 prósent og nam rúmum einum milljarði evra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs