Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Grétar Rögnvarsson er farsæll skipstjóri: „Alli ríki hringdi og sagði eina og eina gamansögu“

„Það var kolsvarta myrkur. Ég var vel klæddur og það bjargaði,“ segir Grétar Rögnvarsson, skip­stjóri á Jóni Kjartans­syni SU, um þann háska sem hann lenti í djúpt út af Norður­landi þegar hann féll fyrir borð á nóta­veiðum. Grétar á að baki farsælan feril sem skip­stjóri. Hann var aðeins 24 ára þegar tækifærið kom og hann hefur verið í brúnni síðan.

Hann gleymir því aldrei þegar hann féll útbyrðis

„Það situr nú fast í minni mínu. Ég átti þá litla dóttur sem var eins og hálfs árs, fædd 1978, og ég hugsaði allan tímann á meðan ég var í sjónum: Á ég aldrei eftir að sjá hana aftur? Svo fékk ég björgunar­hring og komst í hann.“

Svo kom stærra tækifærið.

„Alli ríki, Alli Jóns, bauð mér að taka við Jóni Kjartans­syni um áramótin 1988. Og það var að hrökkva eða stökkva og ég ákvað að stökkva. Ég fór með Þorsteini Kristjáns­syni skip­stjóra sem var að fara í land; fór með honum tvo túra bara til að átta mig á aðstæðum og sjá skipið. Ég var búinn að vera á Sæljóninu svolítið mikið á nót en engar hliðar­skrúfur eða neitt svoleiðis þar. Svo einhvern veginn gekk það upp þarna fyrsta veturinn; við vorum á loðnu og svo vorum við á trolli á sumrin. Og grálúðu mikið. Og rækju. Á vorin fórum við yfirleitt á grálúðu og frystum um borð.“

Þetta hefur allt gengið að óskum.

„Já.“

Síðan ertu búinn að vera á Jóni Kjartans­syni.

„Já, síðan 1988.“

Þetta eru orðnir nokkrir bátar. Fjórir bátar.

Er þetta ekki met?

„Ég veit það ekki. Sama skips­nafnið; þetta eru orðnir nokkrir bátar. Fjórir bátar.“

Fyrst var það gamli Narfinn sem var svo breytt í nótaskip. „Svo fórum við með hann tvisvar til Póllands í breytingar; sett í hann stærri vél og byggður nýr framendi á hann. Síðan fór ég yfir á Hólma­borgina þegar hún var skýrð Jón Kjartansson. Aðalsteinn Jónsson var þá keyptur og ég fór þá yfir á hann. Svo sóttum við þennan til Skotlands fyrir fimm eða sex árum sem ég er á núna.“

Alli ríki nýtur mikillar virðingar og sagan fer vel með hann.

„Já, hann var einstak­lega skemmtilegur maður og þægilegur og það var gott að vinna fyrir hann. Hann hringdi mikið um borð eftir að símarnir komu og fylgdist með og sagði manni eina og eina skemmtisögu stundum í leiðinni. Hann var mikill sögumaður.“

Það er líklega gæfan hjá ykkur á Eskifirði; þetta hefur aldrei farið neitt. Það var smáuppnám á sínum tíma þegar var skipt upp. En Þorsteinn er líklega með sömu elementin og Alli; það er að fyrir­tækið er fyrir bæinn.

Örugg­lega eitt flottasta upp­sjáv­ar­frysti­hús í Evrópu.

„Fyrir­tækið er fyrir bæinn og fólkið og það er búið að vera að byggja þetta fyrirtæki upp. Þetta er orðið mjög flott fyrirtæki; örugglega eitt flottasta uppsjávar­frystihús í Evrópu og skipin góð. Það hefur verið byggt upp og það er mjög flott. Þorsteinn hefur gert þetta mjög vel með sínu fólki.“

Hann hugsar þetta eins og Alli.

„Hann hefur lært eitthvað af tengapabba sínum.“

Grétar er spurður hvernig hann sjái fram­tíðina á Eskifirði.

„Ég held að hún sé nokkuð björt. Ég vona það. Ég held að svona fyrirtæki fari aldrei neitt eins og er búið að byggja það upp svona mikið. Þau fara ekkert. Þau geta kannski farið í einhverra annarra eigu. Allavega sé ég ekki fyrir mér að þetta sé neitt að fara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt