Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Fresta refsingu eftir löðrunga – Maðurinn játaði brot sitt og lýsti iðrun

Héraðsdómur Austurlands
Hér­aðs­dómur Aust­ur­lands

Héraðs­dómur Austur­lands ákvað að fresta ákvörðun refsingar skilorðs­bundið yfir karlmanni sem snoppungaði annan mann svo af hlutust meiðsli.

Í Austur­frétt segir að atvikið hafi átt sér stað í apríl­byrjun á þessu ári, úti á götu í ónefndum bæ á svæðinu. Sá ákærði sló hinn manninn í andlitið, samkvæmt ákærunni, með flötum lófa og handar­baki þannig að eymsli hlutust af, mar og blæðing úr eyra.

Kemur fram í máls­gögnum að atvikið hafi átt sér tölu­verðan aðdrag­anda en eiginkona ákærða og barns­móðir brotaþola var nálægt er atvikið átti sér stað. Hún hafði stuttu áður óskað aðstoðar lögreglu en hún hafði átt í útistöðum við barns­föður sinn um þó nokkurn tíma.

Sagðist hinn ákærði hafa hlaupið til er hann sá hann á gangi og eftir stutt karp og atgang, þar sem höfuð þeirra hafi meðal annars „flækst saman“, hafi hann slegið manninn í andlitið. Játaði hann brot sitt og lýsti iðrun. Hefur hann ekki áður sætt refsingu sem hefur áhrif á ákvörðun refsingar.

Telur dómurinn manninn hafa gerst sekan um líkams­árás en taldi best að fresta ákvörðun um refsingu í tvö ár. Skipaður verjandi mannsins afsalaði sér rétti til þóknunar en hann hafði við málflutning lýst því yfir að það myndi hann gera ef maðurinn yrði dæmdur til greiðslu hennar.

Það var lögreglu­stjórinn á Austur­landi sem höfðaði málið en farið var fram á að maðurinn yrði dæmdur til refsingar og alls sakar­kostnaðar en verjandi hans óskaði eftir vægustu refsingu sem kostur var á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp