Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fyrsta lýsisgerðarhola víkingaaldar mögulega fundin á Íslandi

Tíunda sumarið í uppgreftri á Stöð hefst brátt.

Stöð í Stöðvarfirði.
Stöð í Stöðv­ar­firði. Frá upp­greftrinum í fyrra sumar. Mynd: Facebook

Uppgröftur að Stöð í Stöðvar­firði heldur áfram í sumar og markar það tíunda sumarið í röð sem rann­sóknir fara þar fram. Í fyrra fannst þar nytjahola frá víkingaöld sem hefur vakið mikla athygli en holan var hellulögð á öllum hliðum, sem er einstakt á Íslandi. Þekkt er frá nágranna­löndum að slík mannvirki hafi verið notuð til lýsis­gerðar og gefur þetta fundinum nýja vídd.

Dr. Bjarni F. Einarsson fornleifa­fræðingur, sem leiðir uppgröftinn, hefur lengi haldið því fram að Stöð hafi verið útstöð þar sem fólk, líklega frá Noregi, hafi dvalið um tíma til að vinna auðlindir staðarins. Í því ljósi sé ekki ólíklegt að lýsisgerð hafi verið stunduð þar yfir veturinn.

Þó að eintaka stærri fundir hafi verið fáir síðasta sumar, var áfram unnið að því að skýra heildar­mynd af samfélaginu á staðnum. Þunga­miðja rannsókna eru tveir skálar, eða hús, sem liggja hvor ofan á öðrum. Efri skálinn er frá landnámsöld en sá neðri frá tíma fyrir eiginlegt landnám. Enn neðar í jarð­lögunum eru vísbendingar um enn eldri byggða­leifar.

Síðastliðið sumar var stærri skálinn nær full­rannsakaður og einnig voru opnaðar rústir húss norðaustan við hann. Þar fundust óvenju margar stein­skífur, sem benda til vinnslu, auk blásturs­járns sem gefur til kynna járnvinnu, það fyrsta slíka á svæðinu. Áætlað er að kanna það nánar í sumar.

Þá var flogið yfir svæðið með flygildi sem tekur þrívíddar­myndir og haldið áfram að leita að nausti sem gæti hafa hýst skip útstöðvar­fólksins. Þó það hafi ekki fundist enn, hafa komið fram áhugaverð svæði, sérstak­lega austan við skálana, sem verða tekin til skoðunar í sumar.

Austur­frétt fjallaði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp