Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Teitur varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar sagði af sér í dag: „Valdamikið fólk býr við Einimel“

„Þau eru búin að hafa þessa lóð í 30-40 ár. Þetta eru nokkur hundruð fermetrar. Af hverju má þá ekki reikna með að þau borgi þá allavegana lóðagjöld 30-40 ár í tímann, ef að það á að gera þetta upp þetta mál?“ segir Teitur Atlason, vara­borgar­fulltrúi Samfylkingarinnar í frétt á Vísi.

Teitur telur borgar­yfirvöld vera að reyna að skapa gott veður á meðal valda­mikilla íbúa við Einimel, með því að færa lóðamörk þeirra fram um þrjá metra. Teitur sem var í 19. sæti á lista flokksins í kosningunum 2018 – misbýður þessi lausn borgarinnar og segir af sér í dag

Í nýju deili­skipulagi frá meirihlutanum í borginni er lagt til að íbúar við Einimel 18-26 fái í sinn hlut samtals um 388 fermetra lóð, sem áður var litið á sem borgar­land. Á móti tekur borgin þó um 700 fermetra land, sem hluti íbúanna hefur verið með í fóstri – eins og sagt er – í áratuga­raðir.

„Mér finnst þetta enginn milli­vegur. Ef einhver stelur af þér bíl, þá viltu væntanlega fá bílinn til baka – en ekki bílinn með engum hjól­börðum. Þú vilt bara fá bílinn til baka,“ segir Teitur í samtali við frétta­stofu Vísi.

Valdamikið fólk býr við Einimel

Af hverju er þessi ákvörðun þá tekin núna? Teitur segir valda­mikið fólk í íslenskum stjórn­málum og efnahags­lífi búa við Einimel.

„Það fólk hefur mikið vogarafl í pólitískum ákvörðunum. Mér dettur í hug að það sé verið að reyna að skapa gott veður fyrir þetta fólk,“ segir Teitur.

Þar vísar hann meðal annars til Einars Arnar Ólafs­sonar, fyrr­verandi forstjóra Skeljungs, sem býr í einu húsanna og einnig Hildar Björns­dóttur borgar­fulltrúa Sjálfstæðis­flokks. Hún býr að vísu ekki í húsi sem tengist málinu.

388 fermetra lóð í Vesturbæ gæti verið samtals um 20 milljón króna virði. En lóðin sem var alltaf í notkun var að auki um 700 fermetrar – sem má sjá fyrir sér að sé um 35 milljón króna virði ef það hún væri seld.

Þess er þó að geta að fæstir íbúanna munu hafa búið í húsunum allan þann tíma sem umræddar lóðir hafa verið í fóstri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá