Grunaður morðingi var handtekinn í Dayton í Ohio í Bandaríkjunum eftir dramatískan flótta undan lögreglu sem lauk með því að hann ók lögreglubifreið inn í íbúðarhús.
Lögreglan í Dayton hefur birt myndskeið af eftirförinni, sem átti sér stað í síðustu viku. Þar sést silfurlituð Toyota-bifreið aka á miklum hraða fram hjá vettvangi umferðarslyss. Lögreglumenn hófu þegar eftirför sem lauk skömmu síðar þegar bifreiðin hafnaði á tré.
Ökumaðurinn yfirgaf þá bifreiðina og reyndi að komast undan á hlaupum. Lögreglumenn eltu manninn, en honum tókst að komast aftur að lögreglubifreiðum sem skildar höfðu verið eftir. Hann stökk upp í eina þeirra og ók á brott.
Ný eftirför hófst og ók maðurinn á miklum hraða um götur borgarinnar. Hann missti að lokum stjórn á lögreglubifreiðinni og ók í gegnum framhlið íbúðarhúss. Bifreiðin olli töluverðum skemmdum inni í húsinu.
Enginn þeirra sem voru inni í húsinu slasaðist alvarlega. Lögreglu tókst að yfirbuga manninn á vettvangi, en hann er sagður hafa bitið einn lögreglumann við handtökuna.
Að sögn lögreglunnar í Dayton er maðurinn grunaður um morð í nágrannasveitarfélaginu Miami Township. Þá er hann einnig grunaður um aðild að nokkrum öðrum alvarlegum afbrotum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir