Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Með veiðibakteríuna í blóðinu

22. tbl. 2020, ferðalög, fiskur, María Anna Clausen, Veiði, Veiðihornið, veiðikona, VI2005126413
22. tbl. 2020, ferða­lög, fiskur, María Anna Clausen, Veiði, Veiði­hornið, veiði­kona, VI2005126413

María Anna Clausen hefur haft ástríðu fyrir veiði nánast síðan hún man eftir sér og þegar hún kynntist ástinni í lífi sínu, Ólafi Vigfússyni, smitaði hún hann svo rækilega af veiði­bakteríunni að síðan má segja að allt þeirra líf hafi snúist um veiði. Auk þess að reka Veiði­hornið í Síðumúla, þar sem þau selja allt sem til veiðinnar þarf, nota þau hverja frístund til að veiða og hafa undan­farin ár farið í veiði­ferðir til sex heimsálfa, þar sem þau hafa meðal annars lært að verjast árásum hákarla og sjóræningja. 

María ólst upp í Kópa­voginum og vandist því frá barns­aldri að fara út á land í veiði­ferðir um helgar. „Foreldrar mínir voru mikið útivistar­fólk og ég er alin upp við að veiða,“ útskýrir hún. „Mamma og pabbi fóru um hverja einustu helgi allt sumarið út á land og yfirleitt var tjaldað hjá einhverju vatni og veitt. Þannig að ég fékk strax brennandi ástríðu fyrir veiði, hún hefur bara ágerst með aldrinum og þetta er orðið mjög slæmt í dag,“ bætir hún við og skelli­hlær.

María fór í Verzlunarskólann og segir það alltaf hafa legið fyrir að hún ætlaði sér að starfa við einhvers konar viðskipti, en eftir stúdents­próf tók hún þó eilítið aðra stefnu og fór í nám í fiskeldi á Hólum í Hjaltadal, hvernig stóð á því? „Það var bara áhugi á veiði og fiskum,“ segir hún eins og það hljóti að liggja í augum uppi og spurningin sé því óþörf.

Eigin­maður Maríu, Ólafur Vigfússon, var líka í Verzlunarskólanum en þau kynntust þó ekki þar heldur á hinn klassíska íslenska máta; á balli á Broadway. Margir halda að áhuginn á veiðinni hafi leitt þau saman, en sú var þó ekki raunin. „Eftir að við hittumst á Broadway og byrjuðum að vera saman fór hann með okkur pabba og mömmu í veiðitúr og fékk bakteríuna eiginlega strax,“ útskýrir María. „Síðan höfum við farið í veiði eins oft og við getum, tókum strákana okkar þrjá með þegar þeir voru litlir en tókst ekki að gera þá að eins áköfum veiði­mönnum og við erum, ég held við höfum alveg yfirkeyrt þá sem börn, þeim fannst gaman að veiða en það tóku ýmis önnur áhugamál við hjá þeim á unglings­árunum, en þeir eru farnir að koma stundum með okkur í veiði aftur og ég á nú von á því að þeir fái veiði­áhugann aftur með tímanum.“

Kúnnarnir héldu að einhver hefði gleymt barni

Árið 1998 keyptu María og Ólafur Veiði­manninn í Hafnar­stræti og síðan má eiginlega segja að allt þeirra líf, bæði í vinnunni og einka­lífinu, hafi snúist um eitthvað sem tengist veiði­skapnum. Þau hafa alltaf unnið saman í búðinni og farið saman í veiðitúra, er ekkert erfitt að vera svona saman allan sólar­hringinn, alla daga? „Nei, þetta er bara ógeðslega gaman og gott og notalegt,“ segir María með sannfæringar­krafti. „Yngsti sonur okkar var eins árs þegar við keyptum Veiði­manninn og við höfðum hann með okkur í vinnuna líka til að byrja með. Við létum hann sofa fyrir utan búðina í vagninum sínum og það kom oft fyrir að fólk opnaði búðar­dyrnar og kíkti inn, sá að þar var enginn viðskipta­vinur og sagði okkur að það hlyti einhver að hafa gleymt barni fyrir utan. Ég held ég myndi nú ekki þora að láta smábarn sofa í vagni úti á götu í miðbænum í dag, en á þeim tíma var þetta bara sjálfsagt mál.“

„Við létum hann sofa fyrir utan búð­ina í vagn­inum sínum og það kom oft fyrir að fólk opn­aði búð­ar­dyrnar og kíkti inn, sá að þar var eng­inn við­skipta­vinur og sagði okkur að það hlyti ein­hver að hafa gleymt barni fyrir utan.“

Reksturinn á Veiði­manninum blómstraði og árið 2001 færðu María og Ólafur út kvíarnar og opnuðu Veiði­hornið í Síðumúla. Þau ráku báðar búðirnar í sjö ár en tóku þá ákvörðun að loka í miðbænum árið 2008, rétt fyrir hrun. „Við vorum eiginlega bara að skella í lás í Hafnar­strætinu þegar kreppan skall á,“ segir María. „Hún var þó ekki ástæðan fyrir í því að við ákváðum að loka, fólk var farið að flýja úr miðbænum á þessum tíma og fyrir­tækin líka. Skortur á bíla­stæðum var sérstak­lega bagalegur fyrir svona búð eins og Veiði­manninn, þú ferð ekkert að bera fullt af veiði­græjum langar leiðir, svo við fundum mjög mikið fyrir því hvað fólk var þakklátt fyrir að geta lagt fyrir utan búðina í Síðu­múlanum.“

Christmas Island í algjöru uppáhaldi

Fyrir nokkrum árum byrjuðu María og Ólafur að fara í veiði­ferðir út um allan heim, hafa þegar hér er komið sögu stundað veiði í sex heims­álfum og eru, að hennar sögn, bara rétt að byrja, hvernig stóð á því að þau fóru að leita út fyrir landsteinana eftir veiði? „Það hófst nú eiginlega fyrir hálfgerða tilviljun fyrir um það bil tíu árum síðan,“ útskýrir María og hlær. „Þá fórum við að halda nokkurs konar vorhátíð og þangað komu meðal annars fulltrúar fyrir­tækja sem við kaupum vörur af. Einn af þeim var stanga­hönnuður frá Sage og þegar ég var að skutla honum upp á hótel einn daginn sagði hann mér að hann og konan hans væru að fara með hóp af veiði­mönnum til Bahamas, það væru tvær stangir lausar og hvort við vildum ekki bara skella okkur með. Ég sagði bara strax já og bað hann að bóka okkur, var ekkert að spyrja eigin­manninn álits, en hann var alveg til í að prófa þetta þegar ég sagði honum frá því. Þannig að við fórum þangað og eftir það varð ekkert aftur snúið, þetta var svo hrikalega skemmtilegt.“

„Svo vorum við úti á ánni að veiða og það voru fílar út um allt, krókó­dílar í vatn­inu og flóð­hestar og alls kyns dýr. Alveg magnað.“

Síðan hafa þau hjónin farið í veiði­ferðir tvisvar til þrisvar á ári, út um allar jarðir, en hvað stang­veiðina varðar segir María að uppáhalds­staðurinn sé sennilega Christmas Island. „Við höfum flogið þangað í gegnum Havaí og yfirleitt stoppað á Havaí í nokkra daga og verið á Waikiki-ströndinni,“ segir hún. „Þaðan er þriggja tíma flug til Christmas Island sem er eins og að koma í annan heim. Þetta er lítil eyja með um það bil þúsund íbúum og allt frekar frumstætt. Veiðin er þannig að maður fer út með bát klukkan sex á morgnana, tekur með sér samloku í nesti og er úti í sjó allan daginn. Sjórinn er ylvolgur og þarna eru hvít sandrif og maður horfir ofan í tæran sjóinn og kastar á þá fiska sem maður sér. Það er alveg himnesk upplifun.“

Hvernig funduð þið þetta drauma­land? „Við fórum tvisvar með þessum vina­hjónum okkar sem ég nefndi til Bahamas og elskuðum það, en svo langaði okkur að gera eitthvað meira og fórum að leita að ferða­skrifstofum sem bjóða upp á veiði­ferðir,“ útskýrir María. „Svo gúglar maður og leitar að stöðum sem manni finnst spennandi áður en maður bókar. Auk þess að fara til Christmas Island höfum við meðal annars farið nokkrum sinnum til Seychelles og veitt þar á nokkrum litlum eyjum sem flogið er til frá Mahe, aðal­eyjunni, í vélum sem taka um tíu farþega.“

Veitt innan um fíla, krókódíla og flóðhesta

Þannig að þetta er hálfgerð ævintýra­mennska í leiðinni, ekki bara veiði? „Já, það má segja það,“ segir María. „En fyrst og fremst snýst þetta auðvitað um að vera úti í nátt­úrunni í öðrum löndum sem er alveg yndislegt að upplifa. Engin mannmergð þú ert bara að vaða eða ert á litlum bát í frum­skógum Brasilíu og mér finnst alveg óskaplega gaman að kynnast því hvað heimurinn er margþættur. Síðasta ferðin okkar, núna í vetur var til Zambíu þar sem við sváfum í tjöldum á náttúru­verndar­svæði og fengum talstöð til að kalla á starfs­fólkið að sækja okkur þegar við værum tilbúin því við máttum alls ekki ganga neitt ein ef það væru einhver hættuleg dýr á leiðinni. Svo vorum við úti á ánni að veiða og það voru fílar út um allt, krókódílar í vatninu og flóð­hestar og alls kyns dýr. Alveg magnað.“

Umhverfið sem þau hjónin veiða í virðist geta verið dálítið ógnvekjandi, hafa þau einhvern tímann lent í hættu­legum aðstæðum í þessum ferðum? „Ég viðurkenni að mér hefur stundum ekki alveg staðið á sama,“ segir María og brosir. „Sérstak­lega ef það eru hákarlar að synda nálægt manni. Maður veður mikið í sjónum og á Seychelles lenti ég í því að þurfa að elta fiskitorfu með leið­sögumanni, torfan synti alltaf lengra og lengra út og ég elti. Svo sá leið­sögu­maðurinn hákarl og sagði við mig að ég verði að snúa stönginni öfugt og lemja hann í hausinn með hinum endanum. Ég hlýddi og var alveg tilbúin en það kom ekki til þess því hákarlinn synti rólega burtu. Ég varð samt svolítið smeyk. Verð að viðurkenna það.

„Til dæmis hvernig ætti að bregð­ast við ef stór hákarl nálg­að­ist okkur þar sem við værum að vaða í sjónum. En þá átti ég sem sagt að vera poll­ró­leg, standa kyrr og berja stang­ar­hand­fang­inu í trjónu hákarls­ins.“

Við vorum auðvitað búin að fá fyrir­lestra um það hvernig ætti að bregðast við ef hætta steðjaði að. Þegar við veiddum við Providance-kóral­rifið við Seychelles, dvöldum við um borð í Maya DuGong sem er gamalt rannsóknar­skip sem hefur verið breytt í vistar­verur fyrir veiðimenn á svæðinu. Þegar allir veiðimenn vikunnar voru komnir um borð var fyrir­lestur í matsalnum þar sem farið var yfir ýmsar hættur sem gætu orðið á vegi okkar. Til dæmis hvernig ætti að bregðast við ef stór hákarl nálgaðist okkur þar sem við værum að vaða í sjónum. En þá átti ég sem sagt að vera pollróleg, standa kyrr og berja stangar­handfanginu í trjónu hákarlsins. Svo var bent á bjöllu sem var þarna og okkur sagt að ef hún hringdi þá væru sjóræningjar að nálgast og þá ættum við að fara niður í stefnið og bíða þar þangað til hættan væri liðin hjá. Það kemur sem betur fer sjaldan fyrir núorðið að sjóræningjar ráðist til atlögu en fyrir nokkrum árum þurfti að loka veiði­svæðinu um tíma út af sjóræningjum frá Sómalíu sem herjuðu á veiði­skipin. En maður er samt ekkert hræddur, starfs­fólkið veit hvað það er að gera og fer mjög varlega og maður treystir því að það muni ekkert gerast. Og ef svo færi þá er öryggi í því að vita að það er þarna herbergi í stefninu þar sem er matur og fjarskipta­búnaður og hægt að leita skjóls.“

Skotveiði í Namibíu og á Austurlandi

Spurð hvort einhver af þeim framandi stöðum sem þau hjónin hafa heimsótt til að veiða standi upp úr nefnir María Christmas Island aftur, en hún á líka fleiri uppáhalds­staði. „Það er alltaf frábært að koma til Christmas Island,“ segir hún. „Það er líka svo sérstök tilfinning að vera þar því eyjan gæti sokkið nánast hvenær sem er, hlýnun jarðar er að drekkja henni og þar eru allir viðbúnir því að eyjan muni einhvern tímann sökkva. Annars finnst mér mjög erfitt að nefna einhverja uppáhalds­staði, þeir eru svo margir góðir. Við höfum verið mikið í Taílandi, þar sem við erum með fyrirtæki sem hnýtir fyrir okkur flugur, þannig að við höfum ferðast töluvert um þar og veitt. Namibía er líka alltaf yndisleg en þar höfum við verið meira í skotveiði en stang­veiði.“

„Það er líka svo sér­stök til­finn­ing að vera þar því eyjan gæti sokkið nán­ast hvenær sem er, hlýnun jarðar er að drekkja henni og þar eru allir við­búnir því að eyjan muni ein­hvern tím­ann sökkva.“

Þannig að þið skjótið líka, veiðið ekki bara á stöng? „Já, já, við skjótum líka,“ segir María. „Fórum til dæmis saman á hreindýr fyrir austan síðasta sumar og það var alveg yndislegt. Við reiknuðum ekkert með því að veiða fyrsta daginn því það hafði verið svo mikil þoka en svo létti henni og við sáum hreindýr og komumst að þeim og gátum veitt. Það var alveg draumur.“

Það er ekki hægt að láta hjá líða að spyrja Maríu hvað það sé eiginlega sem er svona æðislegt við að veiða og það stendur ekki á svörum hjá henni. „Það er náttúran og upplifunin,“ segir hún ákveðin. „Og svo er þetta líka svo spennandi. Svo upplifir maður að fara á nýjar slóðir og kynnast nýju fólki og nýjum aðstæðum sem er algjör­lega punturinn yfir i-ið.“

Fengu aldrei frið í fríum innanlands

Hafið þið þá dregið úr því að veiða innanlands eftir að þið uppgötvuðuð þessar nýju veiðislóðir um allan heim? „Já, við ákváðum það fyrir nokkrum árum, þegar var orðið svo mikið að gera í vinnunni að við vorum alltaf kölluð úr veiðinni til að fara í vinnuna ef einhver veiktist eða eitthvað kom upp á, að þetta væri ekki alveg að gera sig. Við eigum fastan einn túr í Vatnsdal í ágúst á hverju ári og förum þangað en förum út fyrir landsteinana á veturna, þegar rólegra er í búðinni, og tökum okkur okkar veiðitíma erlendis. Þá förum við á einhverja staði þar sem er hlýtt og notalegt að vera. Við fórum til Kosta Ríka í vetur og höfum farið til Venesúela og notum bara tækifærið til að ferðast á veturna og veiða. Sinnum svo kúnnunum okkar þeim mun betur yfir sumarið.“

Það er augljóst að veiðin, ferða­lögin og verslunin eiga hug Maríu allan, á hún einhver önnur áhugamál sem hún sinnir? „Lífið snýst nátt­úrlega dálítið um veiði,“ segir hún sposk. „Þegar við vorum að byrja gátum við auðvitað ekkert tekið okkur frí, það var bara vinna út í eitt og er það reyndar enn. En við ferðumst töluvert út af vinnunni. Höfum til dæmis farið nokkrum sinnum til Kína og tekið þá aukadaga í frí, farið á Kína­múrinn og skoðað marga markverða staði í bland við vinnuna.“

Í auglýsingum frá Veiði­horninu kemur fram að þar er opið alla daga vikunnar, eru þau hjónin að vinna á hverjum einasta degi? „Já, nema það er frí 17. júní,“ segir María og skellir upp úr. „Við höfum reyndar lokað á sunnu­dögum frá október fram í mars, að undan­skildum desember, þannig að við fáum frí einstaka sinnum.“

Vildu bíða eftir afgreiðslu frá karlinum

Komið hefur fram í fréttum að með það fyrir augum að ferðast innanlands í sumar kaupi landinn veiði­vörur sem aldrei fyrr og María segir það engar ýkjur. „Já, það hefur verið alveg mjög mikið að gera,“ stað­festir hún. „Mér finnst sérstak­lega gaman hvað það kemur margt nýtt fólk sem er að fara að veiða í fyrsta sinn, sérstak­lega ung pör sem eru að kaupa sér vöðlur og stangir og Veiði­kortið og ætla bara að vera að veiða í sumar. Það hefur líka aukist mjög mikið að konur fari saman í hóp að veiða, ég finn aukningu á hverju einasta ári á áhuga kvenna. Þegar við byrjuðum með búðina fengu konurnar venjulega gömlu vöðlurnar þegar karlinn keypti sér nýjar en það hefur algjör­lega breyst. Ég man þegar ég var að byrja að afgreiða í búðinni með manninum mínum þá sögðu karlarnir mjög oft að þeir ætluðu að bíða eftir því að hann yrði laus til að fá afgreiðslu, það þótti ekki líklegt að kona hefði neitt vit á þessu á þeim tíma. Enda voru konur svo sem ekkert mikið í veiðinni þá, ég held við höfum verið um það bil fimm sem vorum aktífar þá. En það hefur gjörbreyst, sem betur fer.“

„Ég man þegar ég var að byrja að afgreiða í búð­inni með mann­inum mínum þá sögðu karl­arnir mjög oft að þeir ætl­uðu að bíða eftir því að hann yrði laus til að fá afgreiðslu, það þótti ekki lík­legt að kona hefði neitt vit á þessu á þeim tíma.“

Það er ekki hægt að skiljast við Maríu án þess að leita hjá henni ráða um stang­veiði, enda er hún sennilega sú kona á landinu sem veit mest um hana, hvað myndi hún ráðleggja konum sem langar að hefja veiði að gera? „Ég held það sé sniðugast að byrja bara í vatna­veiði,“ segir hún eftir smáumhugsun. „Kaupa sér vöðlur og stöng og Veiði­kortið og fara í vötnin hérna í kringum Reykjavík. Það er tiltölu­lega einfalt og þú getur farið út eina kvöld­stund í klukku­tíma, það er bara æðislegt. Það þarf nefnilega ekki að gera neitt mikið til þess að byrja og um leið og maður á sínar eigin græjur er maður orðinn miklu frjálsari. Mistökin sem margir sem eru að byrja gera er að fá útbúnaðinn lánaðan hjá vinum og kunningjum og þá er fólk orðið svo miklu heftara við að fara. Þannig að mér finnst aðal­atriðið að eiga sínar eigin veiði­græjur og byrja bara að veiða. Svo er hægt að fara á kast­námskeið ef fólk langar að veiða á flugu, eða kaupa spúna­stöng og byrja á því, það finnur hver sína leið, aðalmálið er bara að byrja.“

Hnýtir þú þínar eigin flugur? „Ég kann alveg að hnýta og gæti hnýtt fyrir mig sjálf, það er bara enginn tími í það,“ segir María. „eins og ég sagði áðan þá látum við hnýta fyrir okkur úti í Taílandi og fórum þangað í nóvember að heimsækja verksmiðjuna. Það var mjög góð tilfinning, við sköffum áttatíu manns vinnu þar og þau eru rosalega þakklát fyrir það.“

Nóg af spennandi stöðum eftir

Það horfir ekki vænlega með ferðalög á framandi slóðir þetta árið en eru þau María og Ólafur búin að plana næstu ævintýra­ferð þegar ástandið skánar? „Þetta hefur vissulega breytt öllu,“ samþykkir María. „Við hefðum átt að vera að koma heim frá Grikk­landi núna, ætluðum að fara þangað í skemmti- og skoðunar­ferð sem var auðvitað aflýst. Eins misstum við af einni ferð sem átti að vera í lok mars til Seychelles og datt út. En við fórum til Kosta Ríka og Sambíu í vetur þannig að við erum ekki orðin örvæntingar­full, enda eigum við bókaðar tvær ferðir næsta vetur og eina í febrúar 2022. Við gátum breytt ferðinni sem við áttum að fara til Seychelles núna í mars yfir í mars á næsta ári og svo eigum við bókaða ferð til Christmas Island í lok október. Maður lifir í voninni að veiran verði þá gengin yfir svo við komumst þangað.“

Nú þurfum við að fara að pakka viðtalinu saman en á María sér einhvern drauma­áfangastað sem hún hefur ekki enn farið á til að veiða? „Það er nátt­úrlega hellingur eftir,“ segir hún og glottir. „Við höfum ekki enn komið til allra landa í heiminum. Og við erum alltaf að prófa einhverja nýja staði, förum yfirleitt á einn nýjan stað á ári. Á síðasta ári var það Kosta Ríka og mig langar til að fara einhvern tímann til Argentínu líka, það er bara svo líkt því sem er hérna heima en það er alveg á listanum einhvern tímann seinna, eins og margir fleiri staðir. Við höfum til dæmis ekki farið til Indlands enn þá, eigum eftir að fara upp í fjöllin þar að veiða, svo og í frum­skógana í Bólivíu og Kólumbíu, þannig að það er meira en nóg eftir til að hlakka til.“

Spurð hvort þau séu ekkert farin að velta því fyrir sér að minnka við sig vinnuna og setjast í helgan stein liggur við að það hnussi í Maríu.  „Við gerum það örugglega einhvern tímann,“ segir hún. „En ef við komumst í veiði­ferðir yfir veturinn erum við alveg sátt. Við höfum það til að hlakka til yfir sumarið og höldum okkur gangandi á því. Mig langar hins vegar ekkert til að hætta alfarið að vinna, mér finnst svo gaman í vinnunni. Þetta er óskaplega gefandi vinna, margir fasta­kúnnar sem hafa verið hjá okkur árum saman og koma stundum bara til að spjalla um veiðina og svo koma margir við til að segja okkur hvernig vörurnar sem þeir keyptu hafi reynst. Þannig að okkur finnst mjög gaman að vinna í búðinni og erum ekkert á leiðinni að hætta því. Þetta er skemmtilegasta starf í heimi.“

Myndir: Hallur Karlsson og úr einka­safni

Förðun: Emilíanna Valdimars­dóttir, förðunar­fræðingur fyrir Urban Decay á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Desember nálgast óðum

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki