Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Alda Karen segir hugvíkkandi efni vera sýklalyf hugans:„MDMA meðferðin snýst svo mikið um samkennd“

Alda Karen Hjaltalín
Alda Karen Hjalta­lín Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varpinu Þvotta­húsið er engin önnur en fjöltalentinn Alda Karen Hjaltalín.

Alda Karen hefur búið um árabil í New York þar sem hún starfar við persónu­lega ráðgjöf og við að þjónusta fyrirtæki við sölu og markaðs­setningu.

Hér er brot úr viðtalinu:

Alda er aðeins með stúdents­próf og enga háksóla­menntun, hvorki innan sölu og markaðs­mála né sálfræði eða geðhjálpar. Allur hennar árangur er byggður á reynslu og miðast allur hennar boðskapur við að deila aðeins sinni reynslu með undirtón ríks innsæis sem hún segist hafa notið síðan hún var barn. Hún segist skilja gagnýni á það að hún taki til sín skjólstæðinga í einkatíma í hugrækt, tengt atvinnu eða persónu­legum glímum og taki fyrir það 30.000,- á meðan sálfræðingur með sjö ára háskólanám sinni í raun sömu eða svipaðri vinnu fyrir 18.000,- per tíma en fólk verði að átta sig á að hún stendur ein í þessu, hún sé ekki með neitt öryggisnet, hún þurfi sjálf að leigja skrif­stofuna og svo framvegis.

Gunnar falaðist eftir svörum eða skoðunum hennar á síauknum geðgreiningum og „viðeigandi” lyfja­gjöfum sem virðast vera í veldis­vexti hér á landi í málum barna og unglinga sem og full­orðinna og eldri borgara. Alda sagðist stíga varlega til jarðar í þessum efnum enda hafi hún áhuga á að starfa meira með fagfólki og að þetta sé afar viðkvæmt svæði að fara inn á án sérfræði­þekkingar. Þessu tengt spurði Gunnar hana hvort að hún teldi að lyfja­fram­leiðendur hefðu raun­verulegan áhuga á að lækna hugarvíl og geðsjúk­dóma. Aftur steig hún varlega til jarðar en fór úr þessu yfir í samtal tengt notkun hugvíkkandi efna. Hún segir að af persónu­legum ástæðum hafi vaknað mikil áhugi hjá henni á mögu­leikum þessara efna. Nefndi hún helst MDMA og Psilosobin. Efni sem Þvotta­húsið hefur fjallað talsvertu um í sínum fyrri þáttum. Alda hélt því fram að með notkun MDMA í meðferðar­umhverfi og í umsjón fagfólks sé árangurinn mun betri en við erum vön með hefð­bundnum geðlyfjum. Segir hún að við séum á þeim stað sem við vorum á áður en að sýklalyf komu á markaðinn, stöðnuð í einskonar lyfjasúpu sem hefur sýnt sig að sé ekki taka miklum framförum. Ennfremur segir hún að þessi hugvíkkandi efni séu í raun sýklalyf hugans og að við eigum eftir að sjá það betur og betur með auknum rann­sóknum og aukinni fræðslu að útrýma fordómum og hræðslu. Með tímanum munu fleiri og fleiri stíga fram og öðlast hugrekki til að deila sínum reynslum, presónulegum sem og reynslum skjólstæðinga án þess að óttast afleiðingar frá þeirra akademíska umhverfi.

Alda Karen nefndi dæmi um MDMA meðferð sem hún fræddist um á ráðstefnu nýverið. „MDMA meðferðin snýst svo mikið um samkennd. Rosalega mikið af ást og fólk nær að sjá sig á svo fallegan hátt og það sem kom fyrir það og fleira.“

„Það eru engar vísinda­lega rann­sóknir sem sýna fram á niðurtúr en það er hinsvegar fullt af fólki á djamminu sem líður ógeðslega illa á mánudegi því það er búið að drekka sig í hel og taka fullt af pillum um helgina,“ sagði Alda Karen aðspurð um niðurtúra eftir MDMA inntöku.

Gunnar spurði Öldu í lokin hver lokaorð hennar væru og voru þau mjög skýr, „Þú ert nóg.“

Þennan frábæra þátt má sjá í heild sinni hé rá spil­aranum hér að neðan sem og að má finna Þvotta­húsið á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt