Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Gunnar Dan Wiium: Uppljómaður maður er upplýstur maður

Gunnar Dan Wiium
Gunnar Dan Wiium

Við erum feimin við að bendla okkur sjálf og aðra við uppljómun. Svolítið eins og einhvers konar „Jantelov“ hindri okkur, skömmin hindrar okkur. Við erum með hugmyndir um uppljómaða manneskju, hún gengur um jörðina í algjörri sátt við það sem er og nánast glóir.

Þessar hugmyndir eru réttar, uppljómuð manneskja er í sátt eða einna heldur nær sátt við hverja hindrun sem hún mætir á endanum. Það geislar af henni karisma og fólk dregst að henni. Vitundar­bylgjan í þessum einstaklingum er þétt, vitundar­bylgjan er stöðug tengsla­myndun milli þess hægra og vinstra og í því samhengi er talað um geisla­baug við fullkomið „samadhi“ ástand. Hins vegar þýðir það ekki að viðkomandi þurfi endilega að vera í þessu ástandi stöðugt, alls ekki. Við erum af holdi og blóði, með tilfinningar og tilfinninga­viðbrögð sem eru ýmist erfð eða áunnin. Það má óhætt segja að tilfinninga­viðbrögð okkar séu karmað okkar og með árvökulli og stöðugri sjálfs­skoðun horfum við inn á við og þar eru þessi viðbrögð okkar skoðuð. Það getur engin annar gert það, við sjálf verðum að hafa hugrekkið og taka allt með fyrirvara því holdið lýgur en sálin heyrir aðeins sannleika.

Smátt og smátt vöxum við og þroskumst, við þroskumst inn og við þroskumst út. Inn þroskinn er grunnur allrar mennsku og í raun má segja að skylda okkar sem manneskjur sé að þroskast á þennan hátt, allur félags­legur þroski er sprottinn af andlegum þroska.

Uppljómuð manneskja fer ekki í lang­varandi stríð, hún tekur ekki afstöðu með þeim sem standa í stríði, uppljómuð manneskja elskar skilyrðis­laust, óháð meintri stöðu innan samfélags, uppljómuð manneskja starfar án strits og er iðin.

Vitund er eilífðar­eðlið, búdda­eðlið, heilagur andinn. Vitund er án upphafs og endis sem og upphaf og endir alls og er það tilgangur mannsins að skilja fæðingu og dauða sem aðeins hverful­leika efnis. Efnið er einn líkami sem tekur á sig óteljandi myndir og vitundin binst hjúpnum hvað eftir annað þar til þessum skilningi hefur verið náð. Jörðin er okkur sem fjötrar og við berjumst og meiðum hvert annað, því við neitum að horfast í augu við sann­leikann um okkar raun­tilgang. Við getum aðeins barist svo lengi því óumflýjanlega munum við í gegnum þjáningu læra að þekkja ljósið, það liggur í eðli sínu samkvæmt. Þegar því ástandi er náð er jörðin okkur ekki fangelsi heldur paradís, þá hættum við að traðka niður náttúruna og meiða hvert annað. Við munum ná tengslum við hvert annað, því í raun erum við aðeins eitt, við munum tilheyra náttúru. Við höfum verið þar áður og munum vera þar aftur.

Hægt er að lesa allt blaðið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá