Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Alþýðukonan Vagna Sólveig er látin: „Góða nótt í síðasta sinn“

Vagna Sólveig Vagnsdóttir.
Vagna Sólveig Vagns­dóttir.

Vagna Sólveig Vagns­dóttir lést í gær 20. júní. Hún var lögð inn á spítala 17. júní með Covid-19 og lést aðeins þremur dögum seinna. Vagna fæddist 22. sept. 1935 og var því 86 ára þegar hún lést.

Hún var þjóðkunn fyrir framlag sitt til þjóðmála­umræðunnar í gegnum spjall­þætti útvarps­stöðvanna. Sólveig Snorra­dóttir, dóttir Vögnu, sagði í samtali við Mannlíf að veikindin hafi gengið mjög hratt yfir. „Hún var með undir­liggjandi lungna­sjúkdóm. Hennar tími var svo sannarlega ekki kominn, hún bjó heima og var alveg sjálf­bjarga og skýr í kollinum.“

Vagna Sól­veig var dug­leg að láta í sér heyra gegn­um tíðina. Hún hring­di reglu­lega í Útvarp Sögu og Bylgj­una, auk þess að vera fasta­gest­ur í Næt­ur­vakt­inni á Rás 2, þar sem hún miðlaði sinni sýn á lífið og til­ver­una.

Vagna Sól­veig fylg­ist grannt með þjóðmál­un­um og þótti fjöl­miðlar þessa lands ganga full­harka­lega fram gagn­vart Alþingi.

Sólveig, eins og hún var svo oft kölluð hefur búið á Þingeyri síðan hún var tvítug. Lengst af vann hún í fisk­vinnslu. Þegar Sólveig hætti að vinna í frysti­húsinu var hún ekki tilbúin að setjast í helgan stein. Hún fór að dunda við að móta styttur af allskyns fígúrum og hlutum í leir og skera út andlit í fjalir og spýtur auk þess sem hún saumaði út.

„Ég sit ekki iðjulaus og læt mér leiðast,“ sagði hún í samtal við Orri Páll Ormarson, blaðamann Morgun­blaðsins árið 2017. Mest segist hún þó gera þetta til gjafa.

Sólveig kemur úr stórum systkinahóp og voru þær fjórar systurnar sem bjuggu á Þingeyri og nokkur barna þeirra líka.

Í gærdag birtust þessi orð á Facebook síðu Vögnu: „Fyrir hönd Vögnu viljum við bjóða góða nótt í síðasta sinn. Ástkær móðir, tengda­móðir, amma og langamma féll frá í dag. Hennar verður sárt saknað og minning hennar mun ávallt lifa.“

Mannlíf vottar aðstand­endum innilega samúð.

Birt með leyfi Sólveigar Snorra­dóttur, dóttur Vögnu Sólveigar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá