Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Hústökufólk á Vatnsstíg: „Þetta er ein tilraun til þess að bjarga heimilunum“

Frá Vatnsstíg. Skjáskot úr myndskeiði mbl.is
Frá Vatns­stíg. Skjáskot úr mynd­skeiði mbl.is

Lögregla réðist í umtals­verðar aðgerðir til þess að koma hústöku­fólki út úr gömlu húsi í miðbæ Reykja­víkur í apríl árið 2009. Það var hópur ungs fólks sem hafði sest þar að og hugðist stofna félags- og lista­miðstöð. Eftir að lögregla hafði gefið fólkinu tækifæri til þess að fara út úr húsnæðinu án árangurs, réðist hún inn í húsið – meðal annars vopnuð keðjusög. Hústöku­fólkið sat sem fastast allt til enda og skvetti meðal annars málningu á lögreglu­menn.

Eigandinn sagðist hafa áhyggjur af eldhættu

„Þann 11. apríl 2009 hefur eigandi yfir­gefins húss við Vatnsstíg 7 samband við lögreglu höfuð­borgar­svæðisins og lýsir áhyggjum sínum yfir því að fólk sé búið að koma sér þar fyrir. Eigandinn lýsir því að ekkert rafmagn sé á húsinu né vatn, og það hafi verið dæmt óíbúðarhæft. Hann segir að með hústöku­fólki skapist eldhætta. Af henni hafi hann áhyggjur, enda ábyrgur sem eigandi hússins.“

Svo hljóðar frásögn í sjónvarpi mbl.is af upphafi atburð­anna í apríl­mánuði árið 2009 í miðbæ Reykja­víkur.

Umfjöllunin var gerð árið 2012 og er aðgengileg hér: Glíma hústöku­fólks og lögreglu.

Aðal­varðstjóri lögreglunnar sem rætt var við í mynd­skeiðinu, Arnar Rúnar Marteinsson, sagði tölu­verðan fjölda hafa safnast saman við húsið þegar lögreglu bar að garði.

„Þetta var töluverður mann­fjöldi þarna og þeir áttu greini­lega von á því að lögreglan kæmi þarna og þeir ætluðu að verja húsið. Við vorum ekkert að flýta okkur sérstak­lega, en höfðum auga með þessu og slökkviliðið vissi af þessu, þannig að við vorum tilbúin að bregðast fljótt við.“

Hóp­ur­inn er sagður hafa þrifið húsið þegar hann fluttist þangað inn og hafi að því loknu efnt til opins húss. Hústöku­fólkið sagðist ætla sér að stunda listir í húsinu, halda þar fyrir­lestra, námskeið og annað. Það var þeirra skoðun að betra væri að húsið fengi hlutverk í stað þess að það drabbaðist niður, en það hafði staðið autt um nokkurt skeið á þessum tíma og var ekki í góðu ásig­komulagi.

Skjáskot úr mynd­skeiði mbl.is

Að fólk taki húsin sín sjálft

Meðal þeirra sem höfðust við í húsinu var lista­konan Steinunn Gunnlaugs­dóttir. „Í heildina held ég að við höfum haft þá hugmynd að fara þarna inn, stofna félags­miðstöð, félags­rými þar sem fólk gæti komið. Fólk sem er í andstöðu við ríkis­valdið og ríkjandi ástand. Við vissum náttúru­lega að við vorum að ögra. Þarna var náttúru­lega ný ríkis­stjórn nýtekin við, bráðabirgða­ríkisstjórn – vinstri stjórn. Við vissum að við vorum líka að ögra þeim, því þarna var rosalega mikið verið að tala um að bjarga heimilunum og allar þessar klisjur. Og við sögðum: Já, þetta er ein tilraun til þess að bjarga heimilunum. Að fólk taki bara húsin sín sjálft.“

Þau sem sest höfðu að í húsinu dvöldu þar yfir páska­helgina. Samkvæmt frásögn Stein­unnar var þar mikill gesta­gangur. Lögregla hafi ekki látið sjá sig fyrr en að morgni miðvikudagsins 15. apríl.

„Við ákváðum að það væri sniðugra að leyfa fólkinu að vera þarna og koma svo um morguninn. Þá voru þrír þarna á verði fyrir utan húsið og áttu að passa það, en það var enginn fjöldi,“ sagði Arnar Rúnar.

Á meðan lögregla hafði frestað aðgerðum sat hústöku­fólk og aðrir vinir og vandamenn ekki auðum höndum, líkt og fram kemur í mynd­skeiðinu. Virki var reist umhverfis húsið, sem búið var til úr hinum ýmsu húsgögnum og munum úr húsum í kring sem einnig stóðu auð á þessum tíma. Eldur var kveiktur í tunnu og fólk safnaðist saman í kring með hrópum og köllum.

Steinunn sagði það ekki beinlínis hafa komið á óvart þegar hústöku­fólkið sá fjölda lögreglu­manna á vettvangi. Hún sagði daginn eftir­minnilegan.

Þegar lögregla réðist í aðgerðirnar var götunni lokað í báða enda og slökkvilið viðbúið.

Samkvæmt lögreglu var fólkinu ítrekað boðið að koma út úr húsinu án afleiðinga. Því varð það ekki við. Eftir loka­viðvörun hófust aðgerðirnar og lögregla lagði til atlögu með hjálma á höfðum og skyldi í höndum. Hústöku­fólkið sletti málningu út um glugga á lögreglu­mennina.

Skjáskot úr mynd­skeiði mbl.is

Enduðu á að nota keðjusög

Fólkið hafði safnast saman á efstu hæð hússins og lögreglu­menn notuðust við hin ýmsu verkfæri til að athafna sig innandyra og reyna að komast að fólkinu, og koma því út. Í ljós kom að neglt hafði verið fyrir stigaopið upp á efstu hæðina og búið að koma rúmi þar fyrir ofan á. Í gegnum göt var svo ýmsu hellt yfir eða kastað í lögreglu, til dæmis málningu, ávöxtum og grjóti.

„Þetta var í rauninni heilmikil aðgerð,“ sagði Arnar Rúnar. Að lokum brá lögregla á það ráð að fara með keðjusög inn í húsið og saga í sundur lokuna fyrir stiga­opinu.

„Þeir voru að saga upp á milli lappanna á okkur,“ sagði Steinunn í upprifjun sinni.

Hún sagði til að mynda að strákur sem hafðist við á efstu hæðinni hafi fengið sögina upp á milli fótanna.

Til stóð að rífa húsið á Vatnsstíg. Lögregla hafði því ekki áhyggjur af því að skemma þar innan­stokksmuni, glugga og fleira. „Við þurftum ekkert að vanda okkur neitt sérstak­lega mikið. Það var vitað,“ sagði Arnar.

Að lokum sagaði lögregla sig í gegnum stigaopið og beitti síðan piparúða á hústöku­fólkið til þess að fá það til þess að fara frá opinu. Því næst var fólkið handtekið uppi í risinu.

„Þeir komu þarna inn, búnir að þamba Red Bull allan morguninn og alveg sturlaðir af pirringi,“ sagði Steinunn. „Þannig að þegar þeir komu inn voru þeir ekkert sérstak­lega glæsi­legir. Útbíaðir í einhverju skyri og jógúrti, slökkvitækis­dufti, málningu og eitthvað. Og alveg rosalega pirraðir.“

Steinunn Gunn­laugs­dóttir. Skjáskot úr mynd­skeiði mbl.is

Kærði lögreglu fyrir árás

16 einstaklingar voru hand­teknir inni í húsinu. Fleiri í viðbót voru hand­teknir fyrir utan húsið, meðal annars fyrir að reyna að hindra störf lögreglu. Alls voru því 22 hand­teknir í aðgerðunum þennan dag. Samkvæmt lögreglu hlaut enginn alvarleg meiðsli en einn hinna handteknu hafi þó kvartað vegna eymsla.

Steinunn sagðist hafa kært lögreglu fyrir árás. „Rétt áður en við komum út, þá tekur hann utan um hárið á mér og lemur hausnum á mér utan í dyrastaf. Sem verður til þess að ég vankast og fæ eflaust einhversskonar heila­hristing. Ég var vönkuð mjög lengi og kastaði upp í fanga­klefanum. Það brotnaði upp úr tönn hjá mér og ég var án læknis­hjálpar og án nokkurrar aðstoðar eða eftirlits í marga klukku­tíma niðri á lögreglustöð.“

Ríkis­saksóknari rann­sakaði málið en það var fellt niður og ásakanirnar ekki taldar á rökum reistar, líkt og segir í umfjöllun um málið.

Arnar Rúnar sagði að betra væri að hafa fjölmiðla­fólk með mynda­vélar á lofti í kringum ýmiss konar mótmæli, því lögregla hefði lent í því að vera sökuð um að beita miklu harðræði. „Þegar myndirnar frá fjöl­miðlum eru sýndar kemur í ljós að það vantar eitthvað inn í frásögnina hjá þeim sem eru að saka okkur um það.“

Lögregla þurfti að fara í fleiri aðgerðir vegna hústöku­fólks á þessum mikla umróta­tíma í íslensku samfélagi. Engar aðgerð­anna voru þó jafn umfangs­miklar og þær á Vatns­stígnum þennan apríldag.

„Ég er mjög ánægð með að við skyldum gera þetta og ég myndi gera þetta aftur ef mér finndist það vera réttur tími eða rétt fólk sem væri til í það með mér. Ég veit ekki hverju þetta skilaði út í samfélagið en þetta var allavega fullkomlega réttmæt ákvörðun akkúrat á þessu spennu­þrungna mómenti í samfélaginu,“ sagði Steinunn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá