Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Jón Mýrdal: „Var ekkert þunglyndur, var bara með heilaæxli“

Jón Mýrdal. Mynd/skjáskot: Facebook
Jón Mýrdal. Mynd/skjá­skot: Facebook

„Hæ, heyrðu ég er með heilaæxli,“ sagði Jón Mýrdal við Sigrúnu Guðlaugs­dóttur, eiginkonu sína, í símtali af spítalanum. Fyrir þremur árum greindist Jón með lífs­hættulegt heilaæxli á stærð við sítrónu sem var skorið samdægurs. Æxlið hafði grasserað í mörg ár og var farið að valda breyttri hegðun í fari og getu Jóns.

Jón Mýrdal segir frá reynslunni sinni í þættinum, Segðu mér, á RÚV.

Sigurlaug M. Jónasdóttir þátta­stjórnandi spyr hann hvort hann hafi verið orðinn eitthvað skrítinn. Jón svarar kíminn að hann: „sé skrítinn og að venju­legur maður hefði að öllum líkindum greinst fimm árum fyrr.“

Sobril, kulnun og þunglyndi

Ýmis teikn og breytingar í fari Jóns voru farnar að gera vart við sig. Sjálfur lýsir hann sér sem orðheppnum og fljótum til svara, en það hafi verið farið. Hægst hefði verulega á öllu í fari hans og hann farinn að sofa mikið. Jón leitaði til lækna og fékk sobril og þunglyndislyf. Sjálfur taldi Jón og aðstand­endur hans að hann væri orðinn þung­lyndur og fann hann fyrir einkennum kulnunar.

„Ég var ekkert þung­lyndur, ég var bara með heilaæxli,“ segir Jón í viðtalinu hjá Sigurlaugu.

40 ísblóm og 4L af kók

Minnis­leysi einkennir tímann fyrir greiningu Jóns, en hann segir þá frá atviki þar sem Sigrún kona hans, tekur á móti honum á heimili þeirra, eftir búðarferð. Jóni hafði mistekist að opna útidyra­hurðina og stóð með hendur fullar með; einn haldapoka af nammi, 40 ísblóm og 4 lítra af kóki. Því næst gekk hann inn og fór að sofa.

Skakkur og dofinn í andliti

Nína, vinkona Jóns, greip þá í taumana og dreif hann með sér upp á bráða­móttöku þar sem hann var sendur í sneið­myndatöku og risavaxið æxli kom í ljós. Jón hringdi í kjölfarið í Sigrúnu konu sína og sagði: „Hæ, heyrðu ég er með heilaæxli.“

Bregðast þurfti strax við og var Jón samstundis sendur í aðgerð þar sem þrýstingur á heila og líkur á flogi voru orðnar lífs­hættulegar.

„Rosa sjokk“

Greining og aðdragandi aðgerðarinnar var snarpur. „Þetta var rosa sjokk, þetta var bara eins og bílslys,“ útskýrir Jón þegar hann er spurður út í viðbrögð aðstand­anda og hans sjálfs „Ef ég hefði þurft að bíða í marga mánuði – þá hefði ég verið mjög kvíðinn.“

„Löngu hættur að spá í þessu“

Aðspurður hvort reynslan hafi mótað hann eða fyllt hann þakklæti. „Nei, eiginlega ekki…“ svarar hann og útskýrir að það sé meðal annars vegna minnis­leysis. „Ég er löngu hættur að spá í þessu […] ég bara held áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá