Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Reynir Hauksson flamenco-gítarleikari: „Ég er alger sökker fyrir rómantík“

Reynir Hauksson
Reynir Hauksson

„Flamenco er eins og heill heimur út af fyrir sig. Flamenco er ekki einn stíll heldur er þetta regnhlífar­hugtak yfir marga stíla sem eiga samt margt sameiginlegt. Það er mikill spuni í flamenco þannig að maður er svolítið mikið að búa til lögin á staðnum. Í flæðinu. Það er mjög gaman. Flamenco er krefjandi tónlist þannig að maður þarf að vera á tánum þegar maður flytur hana. Og hún er ofsalega dínamísk. Hún er hávær og hljóð, það er mikill hiti í henni og mikil hreyfing og ryþmarnir, taktarnir, eru eins og setning. Þeir eru ekki bara flöt slög. Flamenco dekkar allan tilfinninga­skalann,“ segir Reynir Hauksson gítar­leikari sem hefur einbeitt sér að flamenco-tónlist á Spáni þar sem hann hefur búið undan­farin ár. Á næstunni kemur hann fram á nokkrum tónleikum hér á landi ásamt spænska gítar­leikaranum Jerónimo Maya og munu þeir meðal annars einmitt flytja flamenco-tónlist. „Með okkur verða dansarinn Daniel Caballero og söngvarinn Miguel Jimenez.“

Hvar verða tónleikarnir? Mál og menning 1. júní. Hvanneyri Pub 2. júní. Tjarnarbíó 3. og 4. júní. Svo er það flamenco-dans­námskeið í Dans­verkstæðinu 3. og 4. júní.

„Þetta verður svolítill bræðingur. Við erum með nokkur íslensk lög sem við erum búnir að snara yfir í flamenco-búning eins og til dæmis Vísur Vatnsenda Rósu. Svo kem ég til með að spila líka einleiks­stykki sem ég hef samið og Jerónimo spilar líka sóló á gítar. Þannig að þetta verður sambland af hefð­bundnu flamenco með dansi eins og maður sér á Spáni og svo þessi nýjung sem við erum að vinna með, sem er þessi bræðingur á íslenskri tónlist og flamenco.

Flamenco

Reynir ólst upp á Hvanneyri. Píanó stóð í stofunni á æsku­heimilinu og lærði hann á píanó sem og fimm systkini hans. Svo fór hann að læra á gítar; fyrst og fremst rafmagns­gítar. Hann spilaði mikið þungarokk. „Þungarokkið er ennþá í hjartanu mínu.“ Hann fór síðar í formlegt tónlistarnám og fór þá í FÍH og tók tvær brautir þar. „Bæði klassík og djass.“ Svo flutti hann til Noregs þar sem hann bjó í eitt og hálft ár og spilaði og kenndi í tónlistar­skóla?

„Svo kveikti ég á perunni með flamenco-tónlist og áttaði mig á því að flamenco-tónlist inni­heldur nokkurn veginn allt það sem ég fíla í tónlist: Ryþmann, þessa ákefð, tónana og þessa túlkun. Þetta kemur allt heim og saman í flamenco fyrir mér þannig að ég pakkaði niður í tösku og flutti til Spánar og fór að læra flamenco; ég fór gagngert til að læra flamenco því ef maður vill læra flamenco þá verður maður að fara til Spánar til þess að læra það og helst þarf maður að vera í Andalúsíu. Þar er langmest um þetta. Þar er flamenco einhvern veginn út um allt og tilheyrir bara þeirra daglega amstri í raun og veru.“

Þetta var fyrir sex árum.

Ég lærði spænsku í raun og veru til þess að geta lært flamenco.

„Ég kunni ekki spænsku áður en ég flutti út. Ekki neitt. Ég lærði spænsku í raun og veru til þess að geta lært flamenco. Þeir tala ekki ensku þarna.“

Hann bjó í Granada. Sjálfri ævintýra­borginni í Andalúsíu þar sem konungs­hjónin Ferdinand og Isabel, „los reyes católicos“, réðu ríkjum; þau unnu Spán frá Márum með því að leggja undir sig Granada 1492.

„Borgin er ótrúlega falleg og rosalega sögufræg. Það er mikil saga í þessari borg. Fyrir mér var þetta eins og að ganga um á safni sem samt iðaði af lífi á sama tíma. Þetta var merkilegt tilfinning.“

Eins og vertíð

Það var einmitt í Granada sem Íslend­ingurinn kynntist Jerónimo Maya gítar­leikara. Sígauna. „Hann var þar mikið að spila og við urðum mjög góðir vinir. Hann tók mig að sér sem lærling; ég var eini lærlingurinn hans. Hann er sennilega færasti flamenco-gítar­leikari samtímans. Það er eiginlega bara öruggt. Það eru allir á því. Hann var undrabarn en hann byrjaði að vinna sem gítar­leikari þegar hann var 10 ára gamall; sem atvinnu­maður. Og var með debut tónleika í Carnegie Hall í Banda­ríkjunum þegar hann var 12 ára. Hann er búinn að vera að útsetja þessi íslensku lög með mér yfir í flamenco. Þannig að við erum að blanda saman menningar­heimi mínum – þessum íslenska og þjóðlögum okkar – og svo líka menningar­heimi hans sem er flamenco. Þannig erum við að mætast.“

Svo skall heims­faraldurinn á og Reynir þurfti eins og fleiri að vera inni­lokaður meira og minna í nokkra mánuði á heimili sínu.

Ég var inni­lok­aður í þrjá mán­uði og ég gat ekk­ert samið tón­list á þessum tíma.

„Ég gat ekki farið strax til Íslands þegar Covid skall á af því að þá bjó ég með stelpu í Granada. Ég gat ekki skilið hana eftir því ég vissi ekki hvað myndi gerast. Þannig að ég var inni­lokaður í þrjá mánuði og ég gat ekkert samið tónlist á þessum tíma. Það vantaði að fara út og opna hugann. Maður sat bara inni og dagurinn bara leið. Ég gat spilað á gítarinn en ég gat ekki búið til neitt nýtt. Það var engin frum­sköpun. Þá tók ég eftir hvað það er mikilvægt að fara út og opna augun og eyrun.

Svo kom glufa í Covid og ég kom heim til Íslands og var með fullt af tónleikum og það var mjög næs. Svo kom haustið og þá kom ný bylgja og þá fór ég að vinna í slátur­húsi á Sauðár­króki. Fór á vertíð.“

Ef maður ætlar að vera tón­list­ar­maður á Íslandi þá þarf maður að vera frekar fjöl­hæfur.

Jú, hann er eins og á vertíð. Alltaf hreint. Flutti til Madrid í fyrra­haust og segist síðan hafa komið fimm sinnum til Íslands. Nú síðasta dag maímánaðar flaug hann einmitt til landsins með félögum sínum vegna tónleik­anna sem fram undan eru. Svo er hann í gítar­tríói með Birni Thors gítar­leikara. „Þar spilum við djass. Gypsy-djass. Svo er ég líka í salsa­bandi á Íslandi og verðum við með stóra tónleika í Iðnó 19. ágúst; salsaball. Svo er það hitt og þetta. Ef maður ætlar að vera tónlistar­maður á Íslandi þá þarf maður að vera frekar fjölhæfur. Geta gengið inn í hitt og þetta. Ég spila líka mikið undir söng; mér finnst það vera mjög gaman. Ef það dettur inn gigg á Íslandi þá fer ég þangað.“

Jú, hann er kominn heim. „Þeir verða í viku á Íslandi, strákarnir, og ég verð áfram á Íslandi. Að lágmarki í allt sumar. Það er nóg að gera í sumar. Ég tími ekki að sleppa sumrinu á Íslandi. Ég vil vera á Íslandi á sumrin. Mér finnst fínt að sleppa við slabbið og fárviðrið; ég er feginn að vera sem minnst í því og þá er fínt að vera á Spáni.“

(Mynd: Kolla Jóns.)

Hann flakkar. Er svolítið eins og sígauni.

„Þegar ég fæ frí þá finnst mér mjög næs að ferðast ekki. Þá er fínt að vera á sama staðnum og slappa aðeins af.“

Hann segist vera mikill Íslend­ingur í sér. „Ég sakna alltaf Íslands. Þetta er landið mitt. Mér líður hvergi betur í heiminum en á Íslandi. Ég held að það erfiðasta við að vera á Spáni sé heimþráin.“

Björt sumar­kvöld og dirrindí lóunnar.

Og fólkið.

„Fyrst og fremst fólkið mitt sem ég elska. Að vera með því.“

Ástin

Ástin. Þessi ást.

Hann talaði um sambýlis­konu sína í Granada við upphaf heims­faraldursins. Þau eru ekki lengur saman. „Það eru nokkrar konur síðan þá.“

Er gítar­leikarinn Casanova í sér? Don Juan?

„Já, svolítið. Það má segja það. Það hefur reynst mér erfitt að vera í föstu sambandi því það er svo mikið flakk á mér. Þá er þetta svolítið snúið. Það erfiðasta við þetta flakk er að ég er alltaf að kveðja fólk. Og ég veit aldrei nákvæmlega hvenær ég sé það aftur. Planið hjá mér nær ekki mjög langt fram í tímann. Ég er bókaður kannski þrjá fjóra mánuði fram í tímann en svo veit ég ekki hvernig þetta verður á næsta ári. Það gæti verið að ég komi aftur til Madrid í haust en kannski ekki fyrr en á næsta ári. Það verður svolítið mikið að gera á Íslandi og ég þarf að fylgja vinnunni; þar sem hún er. Það er mikil vertíðar­vinna að vera í tónlist. Það erfiðasta við þetta er að vera alltaf að kveðja. Það er alltaf söknuður strax og ég fer frá Íslandi. Ég tala nú ekki um ef ég er með kærustu á Íslandi.“

Ég elska ást­ina og er kannski pínu ást­sjúkur ef maður getur orðað það svo­leiðis.

Hann segist vera „alger sökker fyrir rómantík. Ég fíla rómantík. Ég elska ástina og er kannski pínu ástsjúkur ef maður getur orðað það svoleiðis. Ég er mikill rómantíker. Og stundum er bara staður og stund einhvern veginn þannig.“

Hann er fljótur að ná sér eftir sambands­slit. „Ég er með mjög hraða brennslu í líkamanum og það er ómögulegt fyrir mig að bæta á mig; ég þarf að stunda líkams­rækt til að halda mér í vigt. Þannig að ég er með hraða úrvinnslu í líkamanum og ég held ég sé líka með frekar hraða tilfinninga­úrvinnslu. Ég verð líka fljótt ástfanginn.“

Núna á hann íslenska kærustu.

Þetta er eitt það fal­leg­asta sem ein­hver hefur gert fyrir mig.

„Við hættum saman fyrr á árinu og ég fór út og hún kom út til þess að vinna mig aftur. Það var mjög fallegt en hún kom fyrirvara­laust; lét mig vita með tveggja daga fyrirvara að hún kæmi en ég hafði ekki búist við að sjá hana aftur. Hún kom og náði mér aftur í Madrid. Mér finnst þetta mjög fallegt; þetta er eitt það fallegasta sem einhver hefur gert fyrir mig. Ég var til í að gefa þessu séns og svo náði hún að töfra mig aftur.“

Hvert er rómantískasta lagið í huga hans sem viðurkennir að hann sé svolítill Casanova í sér? Don Juan.

Það er Drauma­landið.

Ó leyf mér þig að leiða,
til landsins fjalla heiða,
með sælu sumrin löng.
Þar angar blóma­breiða
Við blíðan fuglasöng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá