Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Segir vanda SÁÁ mikinn: „Ný stjórn virðist hafa beitt einhverjum brellum við rekstur samtakanna“

Svanur Guðmundsson
Svanur Guð­munds­son

„Fyrir tveimur árum var kosin ný stjórn yfir Samtök áhuga­fólks um áfengis- og vímuefna­vandann (SÁÁ). Síðan hefur sigið á ógæfu­hliðina hjá samtökunum sem sést meðal annars á því að samnings­brot SÁÁ er nú til skoðunar hjá Hérað­saksóknara og Landlækni,“ segir Svanur Guðmundsson meðlimur í SÁÁ ogbætir við:

„SÁÁ hefur á liðnum árum náð miklum árangri við meðferð á áfengis­sýki í gegnum starfsemi sinni þrátt fyrir takmörkuð fjár­framlög frá hinu opinbera. Stór hluti starfseminnar hefur verið fjár­magnaður með sjálfs­aflafé og tekið hefur verið við mun fleiri sjúklingum en ríkið er tilbúið að greiða með. Þegar Covid19 faraldurinn gekk yfir fjölgaði verulega sjúklingum en lokað var fyrir möguleika á álfasölu sem takmarkaði mikið tekjur samtak­anna. Það kallaði á uppsagnir starfs­fólks þar sem ríkið var ekki tilbúið til að bæta SÁÁ tekju­skerðinguna og koma með aukið fjármagn.“

Svanur nefnir að „núna hefur komið í ljós að ný stjórn virðist hafa beitt einhverjum brellum við rekstur samtak­anna. Í bréfi Sjúkra­trygginga Íslands (SÍ) frá 4. júní 2021 er SÁÁ krafið um greiðslu 36 milljóna vegna rangra reikninga. Formaður SÁÁ upplýsti ekki rekstrar­félag SÁÁ um bréfið á sínum tíma og taldi líklega það vera einkabréf til sín. Í áfram­haldi af því bréfi og að SÍ fékk ekki þau gögn sem beðið var um nýtti SÍ sér heimild til að fara á starfsstöð SÁÁ til gagna­öflunar. Það leiddi til þess að krafan hækkaði upp í 174 milljónir kr. Sem staðfest var með bréfi frá SÍ 29. desember 2021. Þrátt fyrir þá stöðu sem upp var komin var valdhroki stjórn­enda SÁÁ slíkur að þeir fóru að saka starfs­menn SÍ um misbeitingu valds eða að þetta væri allt misskilningur.“

Hann segir að „Það allt saman leiddi til þess að SÍ sá sér ekki annað fært en að vísa málinu til Héraðs­saksóknara. Þar er málið núna statt og ekki annað að gera en að bíða og sjá hvort dómsmál verði höfðað gegn SÁÁ.“

Honum finnst það blasa við að „Land­spítalinn getur ekki tekið við starfsemi SÁÁ, vegna þess að hann sinnir aðallega tvígreindum einstaklingum, þ.e.a.s einstaklingar sem þjást af geð- og fíkni­sjúkdómum. Óeigingjarnt starf frumkvöðla SÁÁ, sem áður fyrr skilaði frábærum árangri, er í mikilli hættu. Biðlistar hafa lengst og er það annað hvort vegna þess að erfiðara er að komast inn á Vog eða vandinn er að aukast. Það eru dæmi um að einstaklingar þurfi að bíða í 8 mánuði eftir að komast í fíkniefna­meðferð og er það ólíðandi.“

Og bætir þessu við:

„Það eiga ekki að vera biðlistar í fíkni­meðferð. Það eiga alltaf að vera til laus pláss fyrir þá sem þurfa og vilja komast í meðferð við lífs­hættulegri fíkn. Fíkni­sjúkdómar verða alltaf erfiðari og hættulegri þeim sem við þá glíma meðan ekki er gripið inn í af fagaðilum með óæskilegum áhrifum á aðstand­endur og samfélagið í heild sinni. Það er mikilvægt að SÁÁ nái samningum við ríkið og skikki verði komið á þann vanda sem nú blasir við í meðferðar­úrræðum fíkniefna­neytenda.“

Að lokum segir Svanur að það sé von hans að á „næsta aðalfundi SÁÁ verði kosin ný stjórn og að nýr formaður geti undið ofan af þeirri stöðu sem komin er upp í sátt við það góða starfs­fólk sem vinnur á Vogi og á Vík; og í samstarfi við alla þá sem eru í Samtökum áhuga­fólks um áfengis- og vímuefna­vandann. Allt samfélaginu til heilla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá