Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Skógrækt á Íslandi hefur neikvæð áhrif á vaðfugla: „Áhrifin að gæta í Evrópu og Afríku“

Heiðlóa. Mynd/skjáskot. Fuglavefur.
Heiðlóa. Mynd/skjá­skot. Fugla­vefur.

Ný rannsókn sýnir að þótt skógrækt geti gegnt hlutverki í barátt­unni við hnattræna hlýnun þá hafa umfangs­miklar breytingar í gróður­fari hérlendis mikil áhrif á fjöl­breytileika og þéttleika dýra, ekki síst vaðfugla.

Í grein sem birtist fyrir helgi í hinu virta tímariti J. Applied Ecology, sem er flaggskip breska vist­fræði­félagsins, kemur fram að af sjö algengum vaðfuglum sem voru rann­sakaðir var þéttleiki fimm þeirra, heiðlóu, spóa, tjalds, lóuþræls og jaðrakans nær helmingi minni næstu tvö hundruð metra við skógar­jaðarinn saman­borið við svæði sem voru fjær skóginum allt að 700 metrum. Hrossa­gaukur, ásamt skógar­þresti sem er spörfugl, var hins vegar í meiri þéttleika nærri skógar­jaðrinum en fjær honum.

Engin áhrif mældust af hæð trjáa, stærð og þéttleika skógar­reita, eða hvort um barr- eða laufskóga var að ræða. Niður­stöðurnar hafa þýðingu fyrir skipulag skóg­ræktar en þjóðir heims leggja nú mikla áherslu á að koma í veg fyrir að aðgerðir gegn loftslags­breytingum vinni gegn öðrum markmiðum í náttúru­vernd.

Aukin skógrækt getur haft mikil áhrif á farfugla

Í greininni í J. Applied Ecology kemur fram að mikilvægt sé að greina áhrifin af skógrækt til að komast hjá því að valda óafturkræfum breytingum á dýra­stofnum sem hafa hátt verndar­gildi.

Aldís Erna Páls­dóttir, doktorsnemi og fyrsti höfundur greinarinnar segir að: „Mikill fjöldi farfugla verpi hér á landi og Íslendingar hafa skrifað undir alþjóð­lega samninga og skuld­bundið sig til að vernda þessa fugla­stofna. Það er því mikilvægt að huga að áhrifum skóg­ræktar á þessar tegundir og bregðast við þeim áður en áhrifin koma fram á farleiðum íslenskra fugla í Evrópu og Afríku.“

Áhrif breytinga á landnotkun á norðurslóðum á þéttleika vaðfugla

„Á Íslandi eru stórir hlutar heims­stofna ýmissa farfugla sem verpa á jörðu niðri í opnum búsvæðum. Ef aukin skógrækt hefur áhrif á dreifingu og stofnstærðir þessara tegunda, getur áhrifanna gætt á vetrar­stöðvum þeirra í Evrópu og Afríku.“

Aldis mun verja doktors­ritgerð sína við Háskóla Íslands 28. júní. Í doktors­rann­sókninni hefur Aldís beint sjónum að áhrifum breytinga á land­notkun á norðurslóðum á þéttleika vaðfugla.

Aldís Erna Páls­dóttir, doktorsnemi og fyrsti höfundur rann­sóknarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá