Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hinn forsmáði Rolf Harris er látinn – Níðingurinn sem málaði Bretlandsdrottningu

Rolf Harris, pervert.
Rolf Harris, per­vert. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hinn forsmáði fyrrum skemmtikraftur, Rolf Harris, sem sat inni fyrir að níðast á ungum stúlkum, er látinn, 93 ára að aldri.

Harris var fundinn sekur árið 2014 fyrir röð ósæmilegra árása sem hann framdi á ungum stúlkum og konum á árunum 1968 til 1986. Var hann dæmdur í fimm ára fangelsi og níu mánuðum betur.

Í frétt BBC um andlátið kemur fram að Harris hafi verið sleppt út fangelsi árið 2017 en hann bað fórnar­lömb sín aldrei afsökunar.

Áður en glæpir hans komu fram í ljósið hafði hann verið vinsæll fjölskyldu­skemmtikraftur í Bretlandi.

Ekki hafa dánar­orsökin verið kunngjörð.

Harris var fundinn sekur um 12 árásir gegn fjórum stúlkum, oftast á áttunda og níunda áratug síðustu aldar.

Ein sakfelling sem tengdist ósæmilegri árás gegn átta ára stúlku, var snúið við í hærri stigum en hæstaréttar­dómarar neituðu að snúa við hinum 11 sakfellingunum.

Fórnar­lömbin voru meðal annars tvær stúlku á unglings­aldri og vinkonu dóttur Harris.

Málaði drottninguna

Áður en upp komst um glæpi hans hafði hann verið vel þekktur í skemmtana­bransanum í Bretlandi og í heima­landi hans, Ástralíu en ferill hans spannaði meira en 50 ár.

Harris kom til London árið 1952, þá 21 árs gamall og stjórnaði snemma fjöldi barna­þátta í sjón­varpinu sem og annarra skemmtiþátta. Þá gerði hann nokkrar þátta­seríur um dýr og listir. Er Elísabet heitin Bretlands­drottning varð áttræð, árið 2006, málaði Harris málverk af henni.

Á ferlinum hlaut Harri fjöldi verðlauna og viðurkennning en hann hlaut meðal annars inngöngu í Bafta en eftir að hann var dæmdur sekur af glæpum sínum, var hann strípaður af öllum viðurkenningum.

Í réttar­höldunum var hann sagður óhugnanlegur pervert sem notaði frægð sína til að nálgast ungar konur og stúlkur.

„Þú hefur ekki sýnt nokkra iðrun vegna glæpa þinna,“ sagði dómarinn við hann. „Orðspor þitt er rjúkandi rúst en þú getur engum kennt um það nema sjálfum þér.“

Eftir að hann hafði setið inni í þrjú ár í Stafford fangelsinu í Staffordsskíri, var honum sleppt. Flutti hann þá aftur á heimili sitt og konu hans, Alwen, í Bray, Berkskíri. Þau Alwen giftu sig árið 1958. Áttu þau saman dótturina Bindi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár