Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hóteleigendur selja veglega eign

Húsið var reist árið 1956

Skipasund 77
Skipa­sund 77

Glæsilegt og mikið endurnýjað einbýlishús við Skipasund 77 í Laugar­dalnum í Reykjavík hefur verið sett á sölu.

Um er að ræða 186,9 fermetra eign sem reist var árið 1956, auk 15 fermetra frístandandi bjálka­húss sem nýtt er sem fjölskyldu­líkamsrækt. Ásett verð eignarinnar er 159,9 milljónir króna.

Það eru hjónin Halldóra Fanney Jóns­dóttir og Andri Steinn Guðmundsson sem eiga þetta glæsielga hús en þau eru meðeigendur í Aurora Igloo en Andri sér um að reka hótelið auk Aurora Basecamp. Þá er Halldóra verkefna­stjóri hjá markaðs­deild N1.

Húsið hefur að stórum hluta verið endurnýjað á síðustu árum, bæði að innan sem utan. Samkvæmt upplýsingum úr sölu­yfirliti hefur rafmagn verið endurnýjað ásamt nýrri rafmagns­töflu og tenglum. Þá hafa pípu­lagnir verið endur­nýjaðar og gólfhiti settur í allt húsið, auk ofna á baðherbergjum og í forstofu á neðri hæð. Einnig var skólp endurnýjað, þar á meðal lagnir frá húsi út í götu.

Á efri hæð hússins eru forstofa, sjónvarps­herbergi, stofa, eldhús, borðstofa og baðherbergi. Úr stofu er gengið út á svalir með aðgengi niður í stóran og vel frágenginn garð. Á neðri hæð eru forstofa, hol, þvotta­herbergi, þrjú svefn­herbergi og baðherbergi.

Í garðinum eru geymsla, tvær einstaklings­íbúðir og sérstakt líkamsræktarhús. Þá hefur lóðin verið tekin í gegn með upphitaðri hellulögn, pöllum og skjól­girðingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni