Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Helga segir yfirlækni ýta undir fordóma í tengslum við ADHD „Fólkið með stóru tilfinningarnar“

„Frábært bara. Akkúrat það sem adhd gengið þurfti á að halda. Svona til að auka aðeins fordómana í þjóð­félaginu,“ skrifar Helga Flosa­dóttir í pistli sem hún birti á Facebook-síðu sinni í vikunni en Mannlíf fékk leyfi til þess að birta skrifin. Í pistlinum gagnrýnir Helga viðtal Vísis, við Halldóru Jóns­dóttur, yfir­læknis bráða­geðdeildar Land­spítalans. Í viðtalinu segir Halldóra sífellt fleiri leita á geðdeildir vegna geðrofs­einkenna eða örlyndis eftir að hafa verið ávísað örvandi ADHD- lyfjum. Greindi hún jafnframt frá því að ákveðið hafi verið að ráðast í rannsókn á tengslum örvandi lyfja við geðrof og örlyndi.

Helga bendir á í pistli sínum að lengi hafi verið vanga­veltur um rangar greiningar í þjóð­félaginu.
„Ég þekki bara ekki nokkurn kjaft, sem ég hef heyrt að hafi hoppað í geðrof af adhd lyfjunum sínum, verandi svo sannarlega með adhd. Er nú ekki einhver maðkur í mysunni þarna? Hef nú aðeins heyrt í fólki og það er ýmislegt sem getur leitt til geðrofs, sem er nú ekki hægt að segja að sé bara vegna réttrar notkunar lyfjana. Þannig að jú, endilega rannsakið þetta. Svo er það nú þessar endalausu pælingar í þjóð­félaginu að fólk sé ofgreint og allir á lyfjum og what not. Ég er ennþá á því að það sé frekar vangreining hér heldur en hitt. Ég mun ekki haggast frá þeirri skoðun. Hins vegar er það nú svo að það þurfa ekki allir lyf, sem eru með adhd.“

Helga rekur þá hin ýmsu atvik sem einkenna fólk með ADHD.

„Hugsið nú aðeins til baka. 

Skrítni einbúinn. 

Krakkinn hangandi i gardínunum.

Krakkinn sem var alltaf í gipsi.

Konan sem er alltaf bakandi, þrífandi, saumandi og straujandi. 

Kallinn sem er alltaf með hamar, sög eða borvél á lofti.

Gaurinn sem er alltaf i slags­málum.

Allur mann­skapurinn sem þrífst á adrenalíni.

Liðið í skorpu­vinnunni.

Mann­skapurinn sem er alltaf flytjandi. 

Gaurinn sem er alltaf að gefa vinum sínum eitthvað til að missa þá ekki.

Stelpan sem þagði alltaf.

Mann­skapurinn i neyslu(selfmedication).

Spila­fíklarnir.

Fólkið með stóru tilfinningarnar.

Fólkið með stóra hjartað.

Fólkið með litla hjartað.

Fólkið með stóra skapið.

Fólkið með mikla hressið.

Fólkið með miklu sorgina.

Fólkið  sem talar alltaf öskrandi.

Unglings­stelpan sem varð alltaf skotin i öllum strákum sem yrtu á hana. 

Stelpan sem var alltaf i ástarsorg.

Stelpan sem var alltaf með hælsæri því hún gat bara alls ekki beðið eftir rétta skónúmerinu i búðinni.

Stelpan sem fór eftir öllum reglunum og gat ekki labbað yfir á rauðum kalli, um hánótt og ekki kjaftur í sjónmáli, ekki heldur sem fullorðin kona. 

Stelpan sem fór að gráta því hún gleymdi pening fyrir skíða­ferðalaginu.

Stelpan sem fór all in i músíkina sem hún hlustaði á og vissi allt um lista­mennina.

Stelpan sem lærði alla músík textana en getur ekki munað staf í nýju músikinni, sem fullorðin kona. 

Stelpan sem ákvað að horfa ekki á fréttir þegar hún sá hungruðu börnin i eþópíu og forðast þær eins og heitan eldinn 30 árum síðar.

Konan sem getur eiginlega ekki horft á sann­sögulegar myndir.

Stelpan sem grætur þegar hún les um hörmungar heimsins og skánar ekki með aldrinum. 

Unga konan sem er með svo ljós­lifandi ímyndunarafl að hún er ekki enn búin að jafna sig eftir lestur fréttar sem Óli tynes varaði viðkvæma við, rúmum 20 árum síðar. 

Munnræpan sem fer svo út fyrir efnið að hún man ekki hvað hún hvað hún sagði.

Hirð­fíflið.

Stelpan sem lenti alltaf i slags­málum því hún var að verja minni­máttar.

Stelpan sem fór svo i verkalýðs­málin.

Stelpan sem er korter í burnout á fullorðins­árum því álagið kemur úr öllum áttum.

Unga konan sem gat ekki horft á sjónvarp öðruvísi en að prjóna.

Konan sem getur ekki horft á sjónvarp öðruvísi en að vera að skrolla símann.

Stelpan sem mundi allan fjandann í den en man ekki hvað hún gerði í gær.

Stelpan sem var alltaf mættust en gleymir að fara til mömmu sinnar trekk i trekk. 

Konan sem talar hraðar en hún hugsar og er bullandi málhölt.

Stelpan sem fór alltaf snemma að sofa en tekur reglulega vökuna, sem fullorðin kona, því hausinn stoppar ekki.

Unga konan sem var góð kærasta en gefur sér ekki tíma til að bjóða kallinum í pulló og sleik. 

Stelpan sem var einu sinni skemmtileg en á fullorðins­árunum kjaftar alla úr samtalinu.

Stelpan sem þoldi ekki gaur í 20 ár vegna þess að hún beit í sig að hann hefði lúbarið hestinn sinn, þegar gekk illa í keppni, en kemst að því sem kona, að það var bróðir hans sem lamdi hestinn.

Konan sem verður að vera i djöfulgangi annars fúnkerar hún ekki, hún nefnilega veit að hún stendur ekki upp aftur það skiptið. 

Stelpan sem horfði mikið á sjónvarp en sest kannski 2 sinnum i mánuði i sófann, sem kona, þegar hún veit að hún “má” sofna yfir sjón­varpinu.

Stelpan sem vaknaði alltaf á undan klukkunni en sefur reglulega yfir sig sem kona.

Unga konan sem missti af brúðkaupi góðra vina því hún beit i sig að það væri klukku­ríma seinna. 

Stelpan sem passaði bróðir sinn mikið en er andlega fjar­verandi mamma i dag.

Stelpan sem lærði fyrst og lék svo, en á fullorðins­árunum geymir allt fram á síðustu stundu og jafnvel skrópar.

Konan sem getur ekki pakkað niður vegna því hún er sjúklega hrædd um að gleyma einhverju.

Mamman sem gleymir iðulega að græja og gera eitthvað í sambandi við börnin.

Konan sem kaupir bæði því hún getur bara alls alls alls ekki valið. 

Konan sem hoppar sjö sinnum inn því hún gleymir einhverju á leiðinni út í bíl. 

Konan sem fær áráttu fyrir allskonar og annað kemst ekki að á meðan.

Konan með miklu straxveikina, að hún er bara out of order, þar til hún fær eða gerir það sem greip áhugann.

Konan sem vinnur við þrif og á gjör­samlega allar græjurnar.

Konan sem ætlaði bara að flytja inn barnaföt en er flytjandi inn allan fjandann. 

Konan sem gefur sér ekki tíma í að setja inn vörur á heima­síðuna sína en er með trilljón fb síður í staðinn. 

Stelpan sem týndi aldrei neinu en finnur ekki eitthvað, sem kona, vegna þessa að einhver færði það um 10 sentimetra.

Konan sem vill vera allstaðar en þó hvergi.

Konan sem þarf rútínu og á bágt með öll frí. 

Excelstelpan sem er farin svo langt út fyrir rammann að hún ratar ekki heim.

Stelpan sem missir tökin sem fullorðin kona. 

Stelpan sem þekkir ekki þessa konu.

Ég var þessi stelpa en er þessi kona. 

Þekkir þú svona fólk? Ert þú svona fólk?’’

Þess má geta að Helga er með opið Snapchat, Helga Flosa, en þar ræðir hún hin ýmsu mál – ADHD meðal annars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá