Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Svíi dæmdur fyrir að þvinga eiginkonu sína í vændi

Samkvæmt dómi stóð brota­starfsemin yfir í um þrjú ár

Stokkhólmur
Stokk­hólmur Er höf­uð­borg Sví­þjóðar. Mynd: Kabelleger / David Gubler

Sænskur dómstóll dæmdi í dag 61 árs gamlan mann í fjögurra ára og fimm mánaða fangelsi fyrir að hafa skipulagt vændi eiginkonu sinnar og hagnast á því um árabil. Málið hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð og verið líkt við hið umtalaða mál í Frakk­landi þar sem eigin­maður Gisèle Pelicot var sakfelldur fyrir að hafa misnotað eiginkonu sína með grófum hætti.

Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir tilraun til nauðgunar, líkams­árásir, hótanir og minni­háttar fíkniefna­brot. Samkvæmt dómi stóð brota­starfsemin yfir í um þrjú ár.

Í niður­stöðu dómsins kemur fram að maðurinn hafi átt frumkvæði að því að eiginkona hans færi að selja vændi og hafi jafnframt séð um mestalla skipulagningu starfseminnar. Dómurinn taldi að konan hefði verið „miskunnar­laust misnotuð“ og því væri um stórfellt brot að ræða.

Saksóknari málsins hefur áður greint frá því að um 120 kaupendur vændis hafi verið auðkenndir við rann­sóknina. Konan hafi búið við mikinn ótta gagnvart eigin­manni sínum og meðal annars verið hótað af honum ef hún sýndi mótþróa.

Dómstóllinn sýknaði manninn hins vegar af átta ákæru­liðum. Taldi rétturinn að í sjö tilvikum væri ekki unnt að skera úr um hvort þátttaka konunnar hefði verið sjálf­viljug eða ekki, en í einu tilviki þótti ekki nægilega skýrt hvaða kynferðis­legu athafnir hefðu átt sér stað.

Af 29 einstaklingum sem ákærðir voru fyrir kaup á vændi voru 28 sakfelldir. Tveir hlutu fangelsis­dóma en aðrir voru dæmdir til sektar­greiðslu eða skilorðs­bundinna refsinga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs