Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Fjármálaráðuneytið gagnrýnir Lilju: „Endurgreiðslur fara hækkandi í samkeppnislöndum“

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra. Samsett mynd.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Samsett mynd.

Endur­greiðslur vegna kvik­myndagerðar eru gagn­rýndar í bréfi til atvinnu­veganefndar af fjármála­ráðuneytinu. Í bréfinu segir að frumvarp Lilju Alfreðs­dóttur menningar­ráðherra sé ófjármagnað og samráð hafi skort við samningu þess.

Lilja sagði í framsögu­ræðu sinni á Alþingi þar sem hún fjallaði um breytingar á lögum um tíma­bundnar endur­greiðslur vegna kvik­myndagerðar á Íslandi að: „Mikill áhugi sé á þessum áformum ríkis­stjórnarinnar, bæði hér heima fyrir og ekki síður erlendis. Þannig bíða nokkur stór og áhugaverð erlend verkefni, sem reiðubúin eru að hefja tökur á þessu ári, eftir formlegri ákvarðana­töku stjórn­valda og umræddri laga­breytingu.“ Ráðherra sagði mikið til þess unnið að afgreiða frum­varpið sem lög frá Alþingi fyrir þinglok á vorþingi.

Lilja kynnti frum­varpið um miðjan maí. Frum­varpið felur í sér að hlut­fallið af kostnaði við kvik­myndagerð hérlendis sem ríkið endur­greiðir hækkar úr 25 prósentum í 35 og að verkefnin séu stór í sniðum. Þar er gerð krafa um að framleiðslu­kostnaður hér sé yfir 200 milljónir, tökudagar hér að minnsta kosti 30 og starfs­fólkið að minnsta kosti 50.

Tillaga um að efla alþjóðlega samkeppnishæfi

Tillögurnar eru í samræmi við þær áherslur sem fram koma í stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnarinnar um að efla alþjóð­lega samkeppnis­hæft stuðnings­kerfi við fram­leiðslu kvikmynda- og sjónvarps­efnis.

Jafnframt er frum­varpið í samræmi við áherslur og aðgerðir í kvikmynda­stefnu fyrir Ísland til ársins 2030, sem gefin var út í október 2020.

Í frétt RÚV segir að Starfs­hópur hafi verið skipaður til að vinna frum­varpið, en vegna þess að því hafi verið flýtt hafi það alfarið verið unnið í menningar- og viðskipta­ráðuneytinu, en ekki í því samstarfi sem til hafi staðið.

Atvinnu­veganefnd Alþingis tekur málið fyrir á morgun og fær á fund til sín gesti frá Viðskipta­ráði og fjármála­ráðuneytinu. Í aðdrag­anda fundarins sendi ráðuneytið nefndinni bréf þar sem bent er á „nokkra vankanta á frum­varpinu.“

Veikleikar í núverandi kerfi

„Þeim löndum fer sífellt fjölgandi sem bjóða upp á sérstakar endur­greiðslur vegna kvik­myndagerðar og hefur hlutfall endur­greiðslu farið hækkandi á undan­förnum árum í helstu samkeppnis­löndum Íslands. Þannig er það víða komið upp í 35%, t.d. á Írlandi og Möltu. Skotland, Bretland og Kanada hafa einnig verið nefnd sem lönd sem við eigum í harðri samkeppni við á þessu sviði,“ sagði ráðherra í framsögu sinni og sagði mikilvægt að hækka hlut­fallið fyrir stærri verkefni til að tryggja að Ísland verði áfram samkeppnis­hæft sem töku­staður kvikmynda og sjónvarps­efnis. Það eflir innlenda menningu og land­kynningu samhliða því sem það eflir og styrkir íslenska kvikmynda­iðnaðinn og aðrar skapandi greinar.

Í bréfi til atvinnu­veganefndar kemur meðal annars fram að frum­varpið sé ófjármagnað, bæði á yfir­standandi ári og á tíma fjögurra ára fjármála­áætlunar og engar fjár­heimildir til staðar til að mæta því.

Þótt bent sé á það í frum­varpinu að í fjármála­áætlun hækki fjár­heimildin um 300 milljónir varanlega þá sé það til að bregðast við veik­leikum í núverandi kerfi, en dekki ekki fyrir­hugaða hækkun á endur­greiðslu­hlutfallinu.

Ráðuneytið bendir einnig á að það hafi aðeins fengið þrjá daga til að fara yfir frum­varpið, en yfirleitt sé gert ráð fyrir tveimur vikum í slíkt verk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá