Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Heimastjórnarmaður afar ósáttur við embættismenn Múlaþings: „Henda fyrir róða öðrum hugmyndum “

Hjarta Borgarfjarðar eystri
Hjarta Borg­ar­fjarðar eystri Mynd: Austurbru.is

Meðlimur í heima­stjórn Borgar­fjarðar eystri er afar ósáttur með það að embættis­menn á vegum Múlaþings ákveðið einhliða um málefni samfélags­miðstöðvar fjarðarins. Telur hann að heima­stjórnar­fólk eigi að ráða nokkru um málið, sem snýr að hjarta bæjarins, Fjarðar­borg.

Fram kemur í frétt Austur­fréttar að Ólafur Arnar Hallgrímsson, einn af þremur í heima­stjórn Borgar­fjarðar eystri, gagnrýni harðlega það að ráðnir embættis­menn á vegum Múlaþings, taki ákvarðanir sem að hans mati ættu að vera í höndum heima­stjórnar­fólks. Lét hann bóka sérstak­lega undrun og óánægju vegna málsins á síðasta fundi heim­stjórnarinnar en á fundinum var rætt um félags­miðstöðina Fjarðar­borg sem þarnast nauðsynlegrar yfirhalningar til að standast kröfur nútímans.

„Í grunninn snýst þetta um að embættis­menn sem voru að kynna okkur stöðu mála varðandi viðhald og endurnýjun á samfélags­miðstöðinni okkar Fjarðar­borg hafa bara ákveðið að aðeins komi ein tillaga til greina í því efni. Sú tillaga gerir ráð fyrir stór­felldum breytingum á húsnæðinu sem munu taka marga mánuði í framkvæmd að því er mér sýnist með tilheyrandi vandræðum fyrir rekstrar­aðila, íbúa og gesti. Þeir henda fyrir róða öðrum hugmyndum sem fram hafa komið, ná því sama fram varðandi aðgengi og ekki þarf að loka húsnæðinu vegna framkvæmda vikum og jafnvel mánuðum saman. Þvert á móti eiginlega því aðrar hugmyndir sem fram hafa komið sýna að hægt er að koma húsinu í æskilegt og gott horf með öðrum leiðum og án þess að loka því nema í mjög skamman tíma,“ sagði Ólafur.

Fjarðar­borg er eina félags­heimili Borgfirðinga en lengi hefur staðið til að gera tals­verðar breytingar á húsinu enda húsið barns síns tíma líkt og Austur­frétt orðar það en það uppfyllir ekki staðla nútímans að fullu né kröfur um aðgengi. Hugmyndir um að bæta aðgengi, meðal annars fyrir fatlaða, gætu orðið til þess að hægt verði að nýta aðra hæð hússins mun betur en vant er.

Ólafur telur meðal annars þá hugmynd vænlegri, að koma upp stiga- eða lyftuhúsi aftan við húsið. Segir hann að slíkt sé hægt að byggja án þess að loka þurfi húsinu lengi á meðan. Myndi þetta aukreitis stækka nýtanlegt flatarmál Fjarða­borgar og skapa aukið geymslu­pláss. Tillagan sem nú er til skoðunar gerir ráð fyrir lyftuhúsi rétt innan við andyr hússins sem þýðir að allt aðgengi gesta er útilokað á meðan á framkvæmdum stæðu. Einnig mun gólfplass andyrsins minnka verði þessi tillaga samþykkt. Bendir Ólafur á að sú tillaga myndi þýða tals­verðar breytingar á anddyrinu sjálfu og myndi að auki setja alla starfsemi hússins í uppnám í tölu­verðan tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp