Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Frú Ragnheiður veitir fólki með fíknivanda hjálp: „Upprunalega hugsuð sem nálaskiptaþjónusta“

Kristín Davíðsdóttir
Kristín Dav­íðs­dóttir

Nýjustu gestir bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium eru þau Kristín Davíðs­dóttir og Svavar Georgsson. Kristín er hjúkrunar­fræðingur og teymis­stjóri skaða­minnkunar hjá Rauða krossinum og Svavar er fyrrum skjólstæðingur frú Ragn­heiðar og að eigin sögn fíkill og alka­hólisti í bata en hann hefur verið edrú í bráðum þrjú ár. Hér er brot úr viðtalinu.

Frú Ragn­heiður hefur verið starfrækt síðan 2009 en þar er unnið eftir hugmynda­fræði skaða­minnkunar þar sem lögð er áhersla á að fyrir­byggja þann skaða og þá áhættu sem getur hlotist af notkun vímuefna fremur en að fyrir­byggja notkunina sjálfa.

Hr. Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands við Frú Ragn­heiði

Frú Ragn­heiður hefur það að markmiði að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og óafturkræfan skaða sem og að auka lífsgæði og bæta heilsufar einstaklinga sem nota vímuefni í æð með því að veita lágþröskulda­þjónustu í nærumhverfi einstaklinga. Lækkun á tíðni sýkinga og útbreiðslu smit­sjúkdóma á borð við HIV og lifrar­bólgu C, færri dauðsföll af völdum ofskömmtunar, ábyrgari neyslu­hegðun og minna af notuðum sprautu­búnaði í almennings­rýmum eru á meðal þess ávinnings sem hlýst af verk­efninu og er það án mikils tilkostnaðar.

Frú Ragnheiður

Kristín kynntist mála­flokknum er hún starfaði á smit­sjúkdóma­deild Lands­spítalans. Þar sá hún sjúklinga sem komu inn í virkri neyslu og í mjög alvarlegu ástandi oft á tíðum. Alvarlegar sýkingar út frá síendurteknum stungum sem og sýkingar í hjarta­lokum var eitthvað sem hún varð mikið var við ásamt lifra­bólgu C og HIV. Síðastliðin tvö ár hefur hún svo starfað sem teymis­stjóri skaða­minnkunar hjá Rauða krossinum. Skaða­minnkunar­úræðið Frú Ragn­heiður er aðalega að veita fólki með fíkni­vanda búnað til sinnar neyslu. Búnaður sem um ræðir eru sprautur og nálar ásamt öðrum búnaði til blöndunar á fíkni­efnum í æð. Ásamt nauðsyn­legum og hreinum búnaði deila þau einnig út fæðu og drykkjum, þá kókómjólk, orku­stykkjum og samlokum. Tjöld og svefn­pokar ásamt hlýjum fötum deila þau einnig því næturnar og oft einnig dagarnir utandyra, geta reynst heimili­lausum eiturlyfja­neytendum afar erfitt og lífs­hættulegt. „Frú Ragn­heiður er uppruna­lega hugsuð sem nála­skipta­þjónusta í raun og veru sem er vel þekkt fyrirbæri í öðrum löndum,“ útskýrði Kristín og hélt áfram. „Þetta byrjaði sem sagt 2009 og var þá í gömlum sjúkrabíl og hafði það megin­markmið að afhenda einstaklingum hreinan búnað annars vegar og hins vegar að taka á móti notuðum búnaði og farga honum. Við erum að tala um sprautur, nálar og í raun allan búnað sem tengist neyslu. Í dag bjóðum við enn upp á þessa þjónustu en bjóðum einnig upp á næringu, vítamín og slíkt og tjöld og svefnpoka og fleira.“

Á Íslandi er áætlað að um 700 manns séu í virkri neyslu á efnum í æð og af þeim um 350 til 400 manns í Reykjavík. Hversu margir af þeim eru heimillislausir er erfitt að henda reiður á enda oftar en ekki skilgreiningum háð. Kristín segir að klárlega megi sjá árangur af þeirri vinnu sem unnin er í Frú Ragnheiði með að skoða tilfelli greindrar lifra­bólgu í þessum hóp frá ári til árs en samkvæmt því fer sú kúrfa minnkandi. Óbeinn sálrænn stuðningur segir Kristín að sé aukreitis ómetanlegur í þessum málum. Um er að ræða skjólstæðinga sem mæta miklum fordómum í samfélaginu og mörgum lokuðum dyrum í kerfinu. Svo mæta þeir hlýju viðmóti og samkennd í bílnum sem oft fær hina hörðustu menn til bresta yfir í einskonar mennsku sem almmennt þrífst ekki svo vel í virki sprautu­neyslu.

„Þau segja mörg að þeim þyki mikilvægt að fá að tjá sig ef þau vilja án þess að einhver sé að dæma þau eða hafa skoðun á því eða segja þeim hvað þau eigi að gera,“ sagði Kristín við Gunnar.

Þetta magnaða og upplýsandi viðtal við Svavar og Kristínu má sjá og heyra á spil­aranum hér fyrir neðan ásamt að Þvotta­húsið finnst á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt