Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Snorri segir fósturvísa ekki hafa týnst: „Að það sé eitthvað vafasamt á seyði er fjarstæðukennt“

Snorri Einarsson, yfirlæknir Livio. Mynd/Livio
Snorri Ein­ars­son, yfir­læknir Livio. Mynd/Livio

Snorri Einarsson, yfir­læknir á Livio Reykjavík, segir að fóstur­vísar hafi aldrei nokkurn tíma horfið eða týnst á stofnuninni.

Blaða­maður Mannlífs hafði samband við Snorra vegna frásagnar hjónanna Gunnars og Hlédísar, en þau halda því meðal annars fram að fóstur­vísar í þeirra eigu hafi horfið þegar þau voru í tækni­frjóvgunar­meðferð á stofnuninni, sem þá hét Art Medica. Þau segja að þeim hafi ekki verið tjáð um réttan fjölda fóstur­vísa, sem skráðir eru í sjúkra­skrá þeirra á stofnuninni, þegar þau voru í meðferð á árunum 2008 til 2010.

Snorri er framkvæmda­stjóri, yfir­læknir og einn af stofn­endum Livio Reykjavík, sem opnaði árið 2016, en starfsemin var áður rekin á sömu kennitölu undir nafninu Art Medica. Snorri kom ekki að stofnun Art Medica heldur hóf hann þar störf löngu síðar, árið 2013.

Vegna laga og reglna sem gilda um trúnað milli lækna og sjúklinga gat Snorri ekki staðfest fundi eða önnur samskipti við þau Gunnar og Hlédísi, líkt og þau lýsa í viðtali við Mannlíf. Hann féllst hins vegar á að ræða almenn mál út frá skálduðum dæmum blaða­manns.

Livio Reykja­vík

„Við höfum aldrei lent í þessu“

Blaða­maður spyr Snorra hvort það hafi gerst á stofunni fyrr eða síðar að fóstur­vísar hafi horfið eða týnst.

„Aldrei nokkurn tíma. Við höfum aldrei lent í þessu, aldrei séð þetta eða heyrt.“

Aðspurður hvernig það gæti hugsanlega orðið að fólk telji sig ekki hafa fengið réttar upplýsingar um fóstur­vísa og förgun þeirra, segir hann að ef fólk teldi að eitthvað annað hefði farið fram heldur en því hafi verið tjáð í meðferð sinni, þyki honum trúlegast að misbrestur hafi orðið í samskiptum og upplýsingum. „Frekar en í meðhöndlun frumnanna og í meðferðinni. Eins og ég segi, þá getur eðlilega verið svolítil áskorun að skilja til fullnustu hvernig svona starfsemi fer fram, þegar maður er leikmaður.“

Snorri segir að það séu alltaf gögn í sjúkra­skrám sjúklinga er varða allt það sem máli skiptir í meðferð þeirra, til að mynda fjölda fóstur­vísa og farganir. „Það er þannig. Ég get ekki alveg svarað fyrir nákvæmlega hvernig það hefur verið í fyrri starfsemi en ég tel að það ætti að vera hægt að lesa það út úr gögnunum. Í okkar sjúkra­skrám og gagna­vinnslu í dag er það mjög skýrt.“

Aðspurður segist Snorri ekki geta tjáð sig um það hvort slík mál hafi mögulega verið með öðrum hætti á meðan stofan starfaði undir öðrum stjórn­endum sem Art Medica. „Ég veit ekki til annars en að það sé alveg skýrt hvernig meðhöndlun þessara frumna og fóstur­vísa hefur farið fram þar. Ég veit ekki annað.“

Þegar Snorri er spurður hvort ekkert eigi þá að geta horfið og engin gögn til sem renni stoðum undir slíkt svarar hann neitandi. „Ég hef enga ástæðu til að ætla neitt slíkt. Það er náttúru­lega bara númer eitt, tvö og tíu í þessu að vinna af heiðar­leika og gegnsæi að hagsmunum sjúklinganna. Ég efast ekki um að allt starfs­fólkið, bæði á Art Medica og auðvitað í dag, hafi ekkert annað að leiðar­ljósi en að gera það af heiðar­leika og með hagsmuni okkar sjúklinga framar öllu. Að það sé eitthvað vafasamt á seyði er bara fjarstæðu­kennt.“

Viðtalið við Snorra má í heild sinni lesa í nýjasta tímariti Mannlífs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá