Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Gunný ekki sátt: „Maðurinn minn og fleiri hafa unnið frítt fyrir hans ráðuneyti“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmálaráðherra, Tolli, myndlistamaður og Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra. Samsett mynd.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags­mála­ráð­herra, Tolli, mynd­lista­maður og Jón Gunn­ars­son, dóms­mála­ráð­herra. Samsett mynd.

Gunný Magnúsdóttir er alls ekki sátt við það að hvorki Jón Gunnarsson, dómsmála­ráðherra né Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála­ráðherra hafi sýnt þá virðingu að mæta á aðalfund Góðgerða­félagsins Bata. Gunný og maðurinn hennar Tolli hafa unnið að málefnum þessa félags frítt fyrir ríkis­stjórnina og finnst henni, að það minnsta væri, að setja sig í samband við sig og mæta á fundinn.

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra var dómsmála­ráðherra á þeim tíma sem unnið var að uppbyggingu félagsins og Ásmundur Einar Daðason, barnamála­ráðherra, fyrrum félagsmála­ráðherra. Þau hafi bæði sýnt þessu verkefni mikinn áhuga og stutt vel við þau. Þess vegna kemur þessi ákvörður Gunnýjar mikið á óvart og vonar hún að þeir ákveði að lokum að mæta á fundinn á morgun.

Góðgerða­félagið Bati var stofnað af Tolla, en tilgangur félagsins er aðstoða þá sem hafa þurft að sæta réttar­gæslu við að komast út í samfélagið að nýju að lokinni afplánun. Þá hefur félagið unnið að því að veita skjólstæðingum Bata húsaskjól, ásamt fræðslu, atvinnu, utan­umhald o.fl.

Hér má sjá facebook færsluna í heild sinni.

Gunný Magn­ús­dóttir, aðsend mynd.

„Góða­gerða­félagið Bati var stofnað af eigin­manni mínum Tolli ásamt fleirum eftir að Ásmundur Einar Daðason fyrrum félagsmála­ráðherra bað hann um að koma á stofn hópi sem gæti bætt úrræði fyrir skjólstæðinga fangelsis­mála­stofnunar til þess meðal annars að mæta kröfum pyntingar­nefndar Evrópu­ráðs sem þótti illa farið með skjólstæðinga fangelsis­mála­stofnunar. Tilgangur félagsins er aðstoða þá sem hafa þurft að sæta réttar­gæslu við að komast út í samfélagið að nýju að lokinni afplánun með því að veita þeim húsaskjól, ásamt fræðslu, atvinnu, utan­umhalds o.fl.

Ég hef fengið að fylgjast með þessum hópi sem hefur lagt heilmikla vinnu í að koma ríkis­stjórninni til hjálpar og koma þessu úrræði á laggirnar. Ég hef líka orðið vitni af hroka embættis­manna sem vilja halda í refsistefnuna og sýnt þessu verkefni andúð. Ég vil samt nefna að bæði Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir fyrrum dómsmála­ráðherra og Ásmundur Einar Daðason fyrrum félagsmála­ráðherra voru í miklum tengslum við þennan hóp og vildu styðja við góðgerða­félagið Bata á allan hátt. Ég vil minna félagsmála­ráðherra á það að eigin­maður minn og fleiri hafa unnið frítt fyrir hans ráðuneyti og það hefði verið honum til sóma hefði hann séð sér fært um að sýna því virðingu og mæta á aðal­fundinn sem er á morgun. En hvorki hann né nýji dómsmála­ráðherrann hafa sett sig í samband við góðgerða­félagið Bata.“

*Birt með leyfi Gunnýjar Magnúsdóttur.

*Fréttin hefur verið uppfærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá