Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Börn mega ekki lengur gifta sig

Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son, dóms­mála­ráð­herra.

Búið er að afnema undanþágu­heimild dómsmála­ráðuneytisins sem veitti áður fólki undir átján ára aldri leyfi til að ganga í hjónaband. Þetta var gert með nýju frumvarpi dómsmála­ráðherra um breytingar á hjúskapar­lögum, sem samþykkt var á Alþingi nýverið.

Vísir greinir frá þessu. Undanþágu­heimildin hefur þónokkuð verið gagnrýnd, sérstak­lega eftir fyrir­spurn þing­mannsins Andrésar Inga Jónssonar um málið á Alþingi árið 2018. Fyrir­spurninni var beint til þáverandi dómsmála­ráðherra, Sigríðar Á. Andersen. Í svari Sigríðar kom fram að átján börn hefðu fengið undanþágu frá ráðuneytinu til að ganga í hjónaband frá árinu 1998. Af þeim voru sautján stúlkur og einn drengur. Í svarinu kom einnig fram að flest hefðu börnin verið sautján ára þegar undanþágan var veitt og að frá árinu 2013 hefðu fjórar slíkar umsóknir verið samþykktar.

Með samþykkt frum­varpsins var einnig lögfest að gengi fólk í hjúskap erlendis meðan annað hjóna eða bæði væru undir 18 ára aldri, yrði hjúskapurinn ekki viðurkenndur hér á landi. Grunn­reglan sem á við hér á landi er áfram sú að uppfylli hjúskapur sem stofnað er til erlendis lög og reglur þar í landi, verði hann viðurkenndur á Íslandi. Einhverjar undan­tekningar eru á 18 ára reglunni í þessu samhengi, það er ef sérstak­lega stendur á og ótvíræðir hagsmunir þess sem var yngri en 18 ára hafi mælt með hjóna­bandinu. Verður þá horft til þess að viðkomandi verði að minnsta kosti að hafa náð 16 ára aldri þegar hjóna­vígslan fór fram og hjúskapurinn sé viðurkenndur í því landi sem um ræðir.

Markmið frum­varpsins var að samræma íslensk hjúskaparlög alþjóð­legum tilmælum og viðhorfum varðandi lágmarks­aldur þeirra sem ganga megi í hjúskap.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá